:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: miðvikudagur, september 28, 2005 ::

SPURNING DAGSINS
Svona til að lífga aðeins upp á annars dautt blogg og til að testa Ríka í íslenskri tónlistarsögu.
Spurt er um lag og hljómsveit. Meðfylgjandi er brot úr texta lagsins. Brotið er birt með fyrirvara um misheyrn.

"þegar hugsunin hengir heilann og vessar úr sálar sárum og "ráðið" gerðum mínum, þá er ennþá allt í lagi - mér blæðir bara minna"

:: Halogen miðvikudagur, september 28, 2005 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, september 17, 2005 ::
Úrslit á Rikir Closed 2005

Jafnir í 2 til 5 sæki eru: Halogen, Valgardus, Kristallur og Hauxon á rúmlega pari vallarins * 1.5
Sigurverari á nýju vallarmeti og einhverju besta skori sem um getur í sögu golfíþróttarinnar:
  • Gmaríus á innan við einu höggi.

Alveg magnað mót!

Skál.


:: Gmaríus laugardagur, september 17, 2005 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, september 16, 2005 ::
Þar sem morgundagurinn (17.sept) hefur verið sleginn fastur er rétt að huga að dagskránnni. Til tilbreytingar stefnum við á að halda fögnuðinn sunnan Hvalfjarðarins í nýjum húsakinnum Hauxons og frúar að Eggertgötu 8, íbúð 125. Hinir viðbættu 10m2 ættu koma að góðum notum til fagnaðarhaldsins, nú getur hver og einn haft sitt pláss og Halógenið hefur garð til reykjunarinnar.


Við eigum teigtíma fyrir 4 kl. 13:30 á morgun á Garðavelli. Veðurspáin er guðdómleg 2ms og 10°C. Spurning hvort einhverjir eru spenntir fyrir leiknum íA-KR á morgun sem er kl. 14:00 en ég er á þeirri skoðun að við ættum að sleppa honum.

Varðandi átið þá væri ekki vitlaust að nota sér að Ríkir mætast í Rvk. og panta mat. Það er úrvalsmatur í boði á Vegamótum sem hægt er að fá sem take-away og einnig mögulegt að panta austurlenskan mat frá hinum ýmsu hrísgrjónabúllum. Ef menn eru grillhungraðir þá er bara að kveða sér hljóðs.

Við verðum búnir að spila um 17:30 þannig að við ættum að geta etið um 7 leitið. Mönnum leifist að hafa músík meðferðis þar sem ég tapaði öllu lagasafninu mínu nánst um daginn er harði diskurinn minn datt í gólfið, blessuð sé minning hanns.

Ég var leystur út með rússneskum eðal vodka í Helsinki um daginn þannig að vér getum staupað í honum en rétt er að menn komi með sem mest með sér.

Ég legg til að mennta- og uppeldismál verði ekki haft sem aðaldagskrárefni fundarins að þessu sinni þar sem ég treysti að sérfræðingar Ríkra í málefnunum hafi tekið málin föstum tökum. Ég legg til að Ríkir leysi þá samgöngukreppu er upp komin er upp í landsmálapólitíkinni. Sú umræða verður reyndar ekki söm að samskiptaráðunautinu fjarverandi og legg ég til að haldinn verði símafundur um miðnætti til að brúa bilið milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarinnar.

Að lokum vil ég stinga uppá að Rodney Dangerfield sem lést fyrir skömmu verði gerður að verndara mótsins. Hlutverk hanns í Caddyshack svipar mjög til þeirra karaktereinkenna og leikstíls er Ríkir eru þekktir fyrir.

:: HauXon föstudagur, september 16, 2005 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, september 15, 2005 ::
Nýr ferðamáti sem getur ógnað innanlandsfluginu!





Sjá nánar http://www.clusterballoon.org.

:: HauXon fimmtudagur, september 15, 2005 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, september 14, 2005 ::
Einn af 5 stærstu dögum ársins er í dag!

Í dag á fjelagi Valgarduz afmæli, við notum því tækifærið og færum honum okkar bestu afmæliskveðjur!

Hann lengi lifi, húrra, húrra, húrra.

:: Gmaríus miðvikudagur, september 14, 2005 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, september 12, 2005 ::
Jæja, jæja, sei, sei. Tíminn líður hratt á gerviöld. Laufin falla ef trjánum. Fallandi loftvog, rigning jafnvel slydda! Þetta þýðir bara eitt! Golfkeppni Ríkra er handan hornsins! Hvernig líst mönnum á laugardaginn 17. sept? Spáir ágætis rigningu þá.

:: HauXon mánudagur, september 12, 2005 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, september 09, 2005 ::

Gaman að vera svona virkur á blogginu

Kurnin er Finnland, Hauxon?

Kvað þýðir yksi - kaksi - kolme?

Skratti voru Franzarnir annars skemmtilegir. Stórfínir tónleikar.

Jæja

Það held ég nú

:: Valgarduz föstudagur, september 09, 2005 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, september 01, 2005 ::
Hef núna með stuttu millibili slysast til að sjá tvö "tónlistarmyndbönd" með fyrirbæri sem kallað er "Hæsta hendin".

Þvílíkt PRUMP!!!!!!!!! Þetta er algerlega ömurlegt fyrirbæri. Óðamála og þvoglumæltir, vita taktlausir fávitar að fara með einhverja heimskutexta sem þar að auki eru fullir af einhverjum barnalegum dónaskap og bara í einu orði sagt HEIMSKULEGIR!!! Minnir mann á lítil börn sem koma heim til sín með blótsyrði úr leikskólanum og prófa svo að segja þau í hálfum hljóðum bara til að tékka á viðbrögðum foreldranna.

Hvað á það eiginlega að þýða að vera að bjóða fólki upp á þetta? Bara af því einhver "spes" náungi heiti svo "spes" nafni (s.s. Erpur) og hefur svo "spes" skoðanir á "spes" hlutum (N.B. skoðanir hans einkennast yfirleitt af mjög svo takmörkuðum sjóndeildarhring og skorti á mannlegri hluttekningu), þá leyfist manninum bara að bera á borð fyrir alþjóð hvaða viðurstyggilegu froðu sem er! SVEIATTAN OG OJBARA!!

:: Valgarduz fimmtudagur, september 01, 2005 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?