| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: föstudagur, september 16, 2005 ::
Þar sem morgundagurinn (17.sept) hefur verið sleginn fastur er rétt að huga að dagskránnni. Til tilbreytingar stefnum við á að halda fögnuðinn sunnan Hvalfjarðarins í nýjum húsakinnum Hauxons og frúar að Eggertgötu 8, íbúð 125. Hinir viðbættu 10m2 ættu koma að góðum notum til fagnaðarhaldsins, nú getur hver og einn haft sitt pláss og Halógenið hefur garð til reykjunarinnar.
 Við eigum teigtíma fyrir 4 kl. 13:30 á morgun á Garðavelli. Veðurspáin er guðdómleg 2ms og 10°C. Spurning hvort einhverjir eru spenntir fyrir leiknum íA-KR á morgun sem er kl. 14:00 en ég er á þeirri skoðun að við ættum að sleppa honum.
Varðandi átið þá væri ekki vitlaust að nota sér að Ríkir mætast í Rvk. og panta mat. Það er úrvalsmatur í boði á Vegamótum sem hægt er að fá sem take-away og einnig mögulegt að panta austurlenskan mat frá hinum ýmsu hrísgrjónabúllum. Ef menn eru grillhungraðir þá er bara að kveða sér hljóðs.
Við verðum búnir að spila um 17:30 þannig að við ættum að geta etið um 7 leitið. Mönnum leifist að hafa músík meðferðis þar sem ég tapaði öllu lagasafninu mínu nánst um daginn er harði diskurinn minn datt í gólfið, blessuð sé minning hanns.
Ég var leystur út með rússneskum eðal vodka í Helsinki um daginn þannig að vér getum staupað í honum en rétt er að menn komi með sem mest með sér.
Ég legg til að mennta- og uppeldismál verði ekki haft sem aðaldagskrárefni fundarins að þessu sinni þar sem ég treysti að sérfræðingar Ríkra í málefnunum hafi tekið málin föstum tökum. Ég legg til að Ríkir leysi þá samgöngukreppu er upp komin er upp í landsmálapólitíkinni. Sú umræða verður reyndar ekki söm að samskiptaráðunautinu fjarverandi og legg ég til að haldinn verði símafundur um miðnætti til að brúa bilið milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarinnar.
Að lokum vil ég stinga uppá að Rodney Dangerfield sem lést fyrir skömmu verði gerður að verndara mótsins. Hlutverk hanns í Caddyshack svipar mjög til þeirra karaktereinkenna og leikstíls er Ríkir eru þekktir fyrir.
:: HauXon föstudagur, september 16, 2005 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|