| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, janúar 09, 2006 ::
Að skipta um skoðun.
Það er alveg merkilegt hvað það er erfitt fyrir fólk að skipta um skoðun. Sérstaklega þegar skoðun manna mótast af einhverri ákvörðun sem hefur kannski verið illa ígrunduð eða beinlínis röng. Eðlilega þá verðum við öll fyrir því að taka rangar ákvarðanir, misjafnlega oft þó. Það er hins vegar merki um mikinn og góðan þroska að geta endurskoðað fyrri ákvarðanir sínar og viðurkennt að fyrri ákvörðun manns hafi verið röng.
Hins vegar virðist mér svo að kjörnir fulltrúar okkar í öllum flokkum eigi hins vegar afskaplega erfitt með að horfast í augu við þessa staðreynd. Þar virðist vera eðlilegt að skipta ekki um skoðun, alveg sama hvaða málefnalegu rök eru borinn fram. Menn festast í sama farinu og vilja ekki horfast í augu við raunveruleikan og viðurkenna mistök eða þá að staldra aðeins við og endurskoða fyrri ákvarðanir áður en þær koma að fullu til framkvæmda. Fjölmörg dæmi er hægt að nefna í þessu sambandi og hér ætla ég aðeins að nefna nokkur sem koma upp í hugann. - Færsla Hringbrautar
- Héðinsfjarðargöng
- Brottrekstur jafnréttisstýru
- Kárahnjúkavirkjun
- Norðlingaölduveita
- Sundabraut
- Mikil og hröð uppbygging stóriðju
- Tilvonandi "hátæknisjúkrahús"
Eins og sjá má þá eru öll þessi dæmi á einhvern hátt skipulagstengd. Kannski markast það að einhverju leiti að áhuga undirritaðs en þó að mestu leiti að því að þetta eru ákvarðanir sem hafa mikil, jafnvel dagleg áhrif á okkur öll og afkomendur okkar til lengri tíma. Væri ekki æskilegra ef menn stöldruðu aðeins við, hlutstuðu á mótrök, velt málinu betur fyrir sér og tekið betri ákvörðun. Og síðan þegar ákvörðun hefur verið tekin að þá fari menn aftur í gegnum þetta ferli aftur ef framkoma góð og málaefnaleg rök í þá veru að fyrri ákvörðun hafi ekki verið sú besta.
:: Gmaríus mánudagur, janúar 09, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|