| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, janúar 31, 2006 ::
 Ég blæs á svona sögur enda uppspuni frá rótum og myndin þar að auki fölsuð. Meðfylgjandi er upprunaleg mynd, með félaga Hauxyni. Plasmatækið var gjöf frá fyrirtækinu. U2 miðinn var verslaður af systur minni og ég hætti að reykja fyrir mömmu.
:: Halogen þriðjudagur, janúar 31, 2006 [+] ::
...
|
Halogenið gengið til liðs við kallana?
 Ég held að Halogen (eða Hallzenegger eins og hann kallar.is sig nú) sé orðinn að konvörti. Plasmasjónvarp, U2 tónleikar, hættur að reykja, alltaf ný föt ...hvað næst strípur? Það er svoldil Selfoss lykt af þessu öllu saman. Nú ætlar hann að skrópa hjá okkur til þess að "læra". Ég held að hann sé bara að fara að skemmta sér með Köllunum eða Fazmo genginu. Það er eitthvað bogið við þetta!!
:: HauXon þriðjudagur, janúar 31, 2006 [+] ::
...
|
:: mánudagur, janúar 23, 2006 ::
Heilir félagar Ríkir

Nú líður að árlegri Þorraferð Ríkra hf. Eins og komið hefur fram, þá munum við að þessu sinni dvelja í vellystingum í húsnæði menntaklíkunnar nærri Flúðum, stjórnstöð Ríkra á Suðurlandi. Víst er að hinn magnaði skemmtistaður ÚTLAGINN verður opinn þessa helgi, þótt undirrituðum sé reyndar ekki kunnugt um dagskrána sem þar verður í boði. Kannski Steini Spil, Labbi í Glóru eða Rúni Júl verði á svæðinu til að trylla lýðinn í Hreppunum. Við Kristallur ræddum skipulag eða skipulagsleysi helgarinnar lítillega nú á dögunum. Ég legg til að við stefnum á létta máltíð eftir austurkomu á föstudag og svo verði bara heitur pottur og skrall fram eftir kvöldi. Laugardaginn er svo hægt að taka í að ná heilsu á ný. Síðan verði grillveislan mikla á laugardagskvöldið og svo bara spil og rólegheit á eftir. Kaupum þá sameiginlega í léttan kvöldverð á föstudegi og í grillið á laugardegi, að öðru leyti sjái hver um sig. Hvað segja menn um þetta plan?
:: Valgarduz mánudagur, janúar 23, 2006 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, janúar 19, 2006 ::
LAIBACH Á NASA Ríkir gefa grænt ljós!

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun slóvenska stuðgrúbban Laibach halda tónleika á Nasa i mars. "Ég trúi þessu varla", er haft eftir Milan Fras aðalsöngvari sveitarinnar, en þar vísar hann til þess að fulltrúi Ríkra hf hafi samþykkt komu sveitarinnar. Segist hann lengi hafa verið stuðningsmaður Ríkra hf og muni stórverkið "Alle gegen alle" hafa verið samið þeim til heiðurs, en fjallar það einmitt um langa og erfiða baráttu æstráðenda fyrir betri heimi.
:: Halogen fimmtudagur, janúar 19, 2006 [+] ::
...
|
:: föstudagur, janúar 13, 2006 ::
BESTU TÓNLEIKAR ÁRSINS 2005
1. Ríkir hf 1. Sonic Youth 3. U2 4. Rammstein
:: Halogen föstudagur, janúar 13, 2006 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, janúar 12, 2006 ::
Zælir virkjunarzinnar on græningjar! Á þessum síðustu og verstu tímum verður æ erfiðara að fylgjast með hvað er að gerast í tónlistinni. Ég ákvað því að kíkja á hvaða plötur koma oftast fyrir á listum gagnrýnenda fyrir árið 2005 og sótti flestar þeirra. Ég vil því auðvelda ykkur lífið og deila góssinu með ykkur.
Plötur ársins
Hef ekki haft tíma til að hlusta á þetta í hengla en get þó mælt með My Morning Jacket sem hituðu einmitt upp fyrir Foo Fighters í Laugardalshöll 26. ágúst 2003.
Verði ykkur að góu!
:: HauXon fimmtudagur, janúar 12, 2006 [+] ::
...
|
:: mánudagur, janúar 09, 2006 ::
Að skipta um skoðun.
Það er alveg merkilegt hvað það er erfitt fyrir fólk að skipta um skoðun. Sérstaklega þegar skoðun manna mótast af einhverri ákvörðun sem hefur kannski verið illa ígrunduð eða beinlínis röng. Eðlilega þá verðum við öll fyrir því að taka rangar ákvarðanir, misjafnlega oft þó. Það er hins vegar merki um mikinn og góðan þroska að geta endurskoðað fyrri ákvarðanir sínar og viðurkennt að fyrri ákvörðun manns hafi verið röng.
Hins vegar virðist mér svo að kjörnir fulltrúar okkar í öllum flokkum eigi hins vegar afskaplega erfitt með að horfast í augu við þessa staðreynd. Þar virðist vera eðlilegt að skipta ekki um skoðun, alveg sama hvaða málefnalegu rök eru borinn fram. Menn festast í sama farinu og vilja ekki horfast í augu við raunveruleikan og viðurkenna mistök eða þá að staldra aðeins við og endurskoða fyrri ákvarðanir áður en þær koma að fullu til framkvæmda. Fjölmörg dæmi er hægt að nefna í þessu sambandi og hér ætla ég aðeins að nefna nokkur sem koma upp í hugann. - Færsla Hringbrautar
- Héðinsfjarðargöng
- Brottrekstur jafnréttisstýru
- Kárahnjúkavirkjun
- Norðlingaölduveita
- Sundabraut
- Mikil og hröð uppbygging stóriðju
- Tilvonandi "hátæknisjúkrahús"
Eins og sjá má þá eru öll þessi dæmi á einhvern hátt skipulagstengd. Kannski markast það að einhverju leiti að áhuga undirritaðs en þó að mestu leiti að því að þetta eru ákvarðanir sem hafa mikil, jafnvel dagleg áhrif á okkur öll og afkomendur okkar til lengri tíma. Væri ekki æskilegra ef menn stöldruðu aðeins við, hlutstuðu á mótrök, velt málinu betur fyrir sér og tekið betri ákvörðun. Og síðan þegar ákvörðun hefur verið tekin að þá fari menn aftur í gegnum þetta ferli aftur ef framkoma góð og málaefnaleg rök í þá veru að fyrri ákvörðun hafi ekki verið sú besta.
:: Gmaríus mánudagur, janúar 09, 2006 [+] ::
...
|
Sæll er landsins lýður. Nú er nýtt ár hafið og virðist sem það ætli ekki að gefa hinu gamla neitt eftir. Verðbólgan er að komast á fullan skrið og hlutabréfin hækka, leikskólakennarar segja upp í röðum og ráðherrar viðurkenna að þeir geti ekki neitt.
Svar uppáhaldsráðherrans míns, 1. sauðkindar norðausturs kjördæmis, Álgerðar Sverrisdóttir við spurningu fréttamanns RÚV vegna Norðlingaöldulóns. "Sko þetta, ja ég get ekkert. Persónulega er þetta ekkert hjartans mál í mínum huga hvað þarna verður." Þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart því hún er bara ....viti.
Annars fór ég líka á bestu tónleika ársins nú um helgina! Þetta var sko bara snilld, ekkert tónlistaratriði var leiðinlegt. HAM stóð fyrir sínu, það gerðu líka Hjálmar, Björk, Sigur Rós, Mugison, Egó, KK, Magga Stína, Damian Rice, Múm, Rass og ógleymdum Ghostdigital sem er náttúrlega bara snilld. Shock and aw! Annars fyrir ykkur hin sem gerðuð þau stórkostlegu mistök að mæta ekki, þá get ég huggað ykkur með því að þið getið séð konsertinn fljótlega á netinu.
Annars þá er kominn tími til að þið umhverfissóðar farið að taka til í bakgarðinum ykkar og taka afstöðu! Það vill nefnilega svo vel til að um þessar mundir eru vinir okkar stjórnmálamennirnir að koma úr jólafríinu (vísu ekkert fyrr en 17. janúar) og ætla sér að reyna að lauma enn einu áverinu inn í landið. Núna skulum við setja eitt fyrir norðan og kannski tvö hérna á Reykjanesskagann. Er ekki mál að þessu rugli linni?
:: Gmaríus mánudagur, janúar 09, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|