| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, janúar 09, 2006 ::
Sæll er landsins lýður. Nú er nýtt ár hafið og virðist sem það ætli ekki að gefa hinu gamla neitt eftir. Verðbólgan er að komast á fullan skrið og hlutabréfin hækka, leikskólakennarar segja upp í röðum og ráðherrar viðurkenna að þeir geti ekki neitt.
Svar uppáhaldsráðherrans míns, 1. sauðkindar norðausturs kjördæmis, Álgerðar Sverrisdóttir við spurningu fréttamanns RÚV vegna Norðlingaöldulóns. "Sko þetta, ja ég get ekkert. Persónulega er þetta ekkert hjartans mál í mínum huga hvað þarna verður." Þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart því hún er bara ....viti.
Annars fór ég líka á bestu tónleika ársins nú um helgina! Þetta var sko bara snilld, ekkert tónlistaratriði var leiðinlegt. HAM stóð fyrir sínu, það gerðu líka Hjálmar, Björk, Sigur Rós, Mugison, Egó, KK, Magga Stína, Damian Rice, Múm, Rass og ógleymdum Ghostdigital sem er náttúrlega bara snilld. Shock and aw! Annars fyrir ykkur hin sem gerðuð þau stórkostlegu mistök að mæta ekki, þá get ég huggað ykkur með því að þið getið séð konsertinn fljótlega á netinu.
Annars þá er kominn tími til að þið umhverfissóðar farið að taka til í bakgarðinum ykkar og taka afstöðu! Það vill nefnilega svo vel til að um þessar mundir eru vinir okkar stjórnmálamennirnir að koma úr jólafríinu (vísu ekkert fyrr en 17. janúar) og ætla sér að reyna að lauma enn einu áverinu inn í landið. Núna skulum við setja eitt fyrir norðan og kannski tvö hérna á Reykjanesskagann. Er ekki mál að þessu rugli linni?
:: Gmaríus mánudagur, janúar 09, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|