| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, febrúar 28, 2006 ::
Nú þegar enginn hefur neitt að segja er best að bulla bara aðeins. Við Halogen vorum heiðursgestir ásamt Yoko Ono í Íslensku Óperunni á tónleikum samísku ljóðasönkonunnar Hætta Syngja Ölveri síðastliðið laugardagskvöld. Var menningin slík að ég hef ekki náð treflinum af hálsinum síðan.
Eins og sönnum listamanni sæmir var ég latur í vinnunni og setti saman þessar æðislegu vísur. Ég vil tileinka júróvisjónskáldinu Kristjáni Hreinssyni þessi ljóð sem eru ort í minningu Mozarts sem hefði orðið 400 ára hefði hann lifað.
Fyrst ein ferskotin til að skýra fyrir lýðnum að enginn póstur er oft betri en lélegur póstur (þessi póstur er sönnunin)
Áherslu þögn. Hvað segja sveinar slíkir um stóru málin flest? Þá þegja þunnu Ríkir. Því alger þögn er bezt.
Hér er bull með frumsömdum ljóðahætti um nútímann. :-P
Hjónavígsla Hún gerð'ann blótandi, blöskrandi graman. Hann reikar blindandi, blæðandi og rammvilltur út úr kú. Hún gerð'ann blásvartan og bleikan í framan Hann rausar blammerandi, blaðrandi hvað gerum við nú?
Hrannólfur Haukur í horni son
:: HauXon þriðjudagur, febrúar 28, 2006 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, febrúar 23, 2006 ::
Mögnuð frétt! Police Search For Ferrari Driver
:: HauXon fimmtudagur, febrúar 23, 2006 [+] ::
...
|
:: miðvikudagur, febrúar 15, 2006 ::
ÍSLENSK TÓNLIST & PLÖTUBÚÐIR
Ég er búinn að vera að hlusta svoldið á lagið I see you though me með Blinfold (Birgir úr Ampop) sem mér finnst snilld. Lagið minnir mig einhvernveginn á gömlu íslensku nýbylgjuna en er samt krútt-elektróník. Blindfold er sóló prójekt Bigga og Stafrænn Hákon hjálpar honum.
Ég ákvað því að að vera pólitískt kórréttur og kaupa Blindfold plötuna og kaupa eina með Stafrænum Hákoni eða jafnvel Ölvis. Skrapp því í Kringluna í hádeginu til að fá mér að borða og verzla. Ég leitaði í 10 mínútur án árangurs og leitaði því til starfsmanns. Hann byrjaði að leita í erlendu músíkinni þar til ég benti honum á að þetta væri líklega flokkað sem íslenskt. Hann þetta svo reyndar fyrir rest og þá eina eintakið og það einhvernstaðar bakvið. Ég ákvað að leita bara eftir hinu sjálfur en gafst svo upp og spurði um þetta en starfsfólk Skífunnar sögðu mér bara að fara í Tólf tóna! Ég fann hins vegar Worm is green (eitt eintak) og tók það líka.
Hvað er málið með íslenskar plötubúðir vs. íslenskir tónlistarmenn?? Þarna í íslenska rekkanum voru staflarnir af eldgömlum Sálar og SSSól plötum en það er ekki nokkur leið að finna nýlega íslenska tónlist! Heldur Skífan að hún geti þröngvað gömlum ballgrúppu hljómplötum upp á mig af því að ég finn ekki Stafrænan Hákon? Væri ekki eðlilegt að svona apparat myndi frekar halda heiðri íslenskrar tónlistar á lofti, þó að þeir séu ekki með samning við Gölt Bárðarson. Ég fer ekki í Skífuna aftur, vona bara að íslensk tónlist fáist í Tólf tónum því annars verð ég að panta hana af Amazon, sem er í raun hlægilegt.
:: HauXon miðvikudagur, febrúar 15, 2006 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, febrúar 02, 2006 ::
Og þá leggjum við í hann!!!! Ef enginn hreyfir mótmælum, þá ætla ég bara að sjá um að versla inn í sameiginlegu máltíðirnar tvær, þ.e. í pizzu á föstudagskvöldið og grillið á laugardagskvöld. Ég pantaði fyllt lambalæri í Einars magasín og kaupi með þeim salat, kartöflur og tilbehör. Vonandi eru bara allir sáttir við þetta - reyndar tek ég fram að ég á það alveg til að bruðla svolítið í matvörubúðum ;-)
Morgunmatur, hádegissnarl, snakk, nammi og drykkjarföng, að ógleymdum þorramat, eru á ábyrgð hvers og eins fyrir sjálfan sig.
Við Hjónin stefnum á að vera komin austur í Heiðarbyggð við Flúðir um klukkan 17-18 á morgun og vonum að hin Hjónin verði á ferðinni á svipuðum tíma (þau eru með talnalykilinn að húsinu). Hafist verður handa undir eins að hita pottinn, tékka á grillinu og spila Pixies-diska í massevis. SMS-um okkur kannski saman um ferðatíma.
:: Valgarduz fimmtudagur, febrúar 02, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|