| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, febrúar 15, 2006 ::
ÍSLENSK TÓNLIST & PLÖTUBÚÐIR
Ég er búinn að vera að hlusta svoldið á lagið I see you though me með Blinfold (Birgir úr Ampop) sem mér finnst snilld. Lagið minnir mig einhvernveginn á gömlu íslensku nýbylgjuna en er samt krútt-elektróník. Blindfold er sóló prójekt Bigga og Stafrænn Hákon hjálpar honum.
Ég ákvað því að að vera pólitískt kórréttur og kaupa Blindfold plötuna og kaupa eina með Stafrænum Hákoni eða jafnvel Ölvis. Skrapp því í Kringluna í hádeginu til að fá mér að borða og verzla. Ég leitaði í 10 mínútur án árangurs og leitaði því til starfsmanns. Hann byrjaði að leita í erlendu músíkinni þar til ég benti honum á að þetta væri líklega flokkað sem íslenskt. Hann þetta svo reyndar fyrir rest og þá eina eintakið og það einhvernstaðar bakvið. Ég ákvað að leita bara eftir hinu sjálfur en gafst svo upp og spurði um þetta en starfsfólk Skífunnar sögðu mér bara að fara í Tólf tóna! Ég fann hins vegar Worm is green (eitt eintak) og tók það líka.
Hvað er málið með íslenskar plötubúðir vs. íslenskir tónlistarmenn?? Þarna í íslenska rekkanum voru staflarnir af eldgömlum Sálar og SSSól plötum en það er ekki nokkur leið að finna nýlega íslenska tónlist! Heldur Skífan að hún geti þröngvað gömlum ballgrúppu hljómplötum upp á mig af því að ég finn ekki Stafrænan Hákon? Væri ekki eðlilegt að svona apparat myndi frekar halda heiðri íslenskrar tónlistar á lofti, þó að þeir séu ekki með samning við Gölt Bárðarson. Ég fer ekki í Skífuna aftur, vona bara að íslensk tónlist fáist í Tólf tónum því annars verð ég að panta hana af Amazon, sem er í raun hlægilegt.
:: HauXon miðvikudagur, febrúar 15, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|