:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: fimmtudagur, apríl 27, 2006 ::

Vinur leitarvélana.

Almannarómur segir að eitt helsta verkefni frambjóðandans sé að beita sér fyrir því að einfalda Internetið (göfugt verkefni í sveitastjórnarframboði). Mun hann þá helst horfa til þess að fækka heimasíðum svo að lokum verði aðeins ein Ríkissíða á Internetinu. Hefur hann í því sambandi lagt áherslu á að hann muni loka sinni eigin til að fara fyrir með góðu fordæmi. Með þessu móti mun öll leit verða einfaldari og meira í takt við það sem stefnt var að í upphafi netdaga. Hefur þessi hugmynd mælst vel fyrir hjá leitarvélum þar sem þær sjá fram á náðuga daga í framtíðinni. Það hefur hvíslað á milli manna að Ríkir muni nota reiknigetu þeirra í eitthvað alveg stórfenglegt! Ef þig langar að sjá þessi undur, þá er bara að kjósa* Ríkan!

* Með þessu er ekki tekin afstaða til annara stefnumála viðkomandi eða hvað þá viðkomandi flokks. Einnig er ekki verið að lýsa yfir stuðningi við viðkomandi flokk eða aðra frambjóðendur. Parental discursion is advised! Other side effects may include dyspepsia, stomach pain, vomiting, nausea, bleeding and physiological disorder.

:: Gmaríus fimmtudagur, apríl 27, 2006 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, apríl 25, 2006 ::
Bloggmeistari Ríkisins

Mig langar bara að hvetja Valgarduz til að halda áfram þessum mikla dugnaði í greinarskrifum á klofningsbloggi sínu. Maður þarf að hafa sig allan við í lestrinum, svo mikil er viskan er flæðir af fingurgómum meistarans. Það er ekkert undarlegt að hann hafi þurft sér pláss bara fyrir sig. Valli verður seint sakaður um að fylla veraldarvefinn af þvaðri eins og aðrir bloggarar því þessar fimm færslur á ári eru úthugsaðir. Nú er Valli búinn að hugsa lengi, næsti póstur verður ROSALEGUR!

Kjósum Valla! Vin leitarvélanna!
Húrra, húrra, húrra!

:: HauXon þriðjudagur, apríl 25, 2006 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, apríl 21, 2006 ::

Andlit dagsins! Andlit dönsku innrásarinnar.


Samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins þá mun þessi á myndinni vera dönsk ofurfyrirsæta að nafni May Andersen. Þessi mynd var tekin af einum besta ljósmyndara lögreglunnar í Miami-Dade sýslu í Flórída. Hins vegar komst förðunarfræðingur lögreglunnar ekki ekki á staðinn í tíma svo það var úr að láta náttúrulega fegurð fyrirsætunnar njóta sín.

Líklega má deila um hversu vel tókst til.


:: Gmaríus föstudagur, apríl 21, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, apríl 20, 2006 ::
Kominn með miða á Wedding Present á Grand rokk!

Best að hafa færsluna ekki of langa. Verðum að reyna að viðhalda þessum minimalisma áfram hér á blogginu.

:: HauXon fimmtudagur, apríl 20, 2006 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, apríl 16, 2006 ::
Fékk þessa mynd af láni af blogginu hennar Söru systur.


GLEÐILEGA PÁSKA!

:: HauXon sunnudagur, apríl 16, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, apríl 13, 2006 ::
Skandinavíska árásin!

Áhugaverðir þessi orðrómur um sameignlega "árás" nágranna okkar Dana og Norðmanna á íslensku krónuna. Vel má vera að það sé margt rétt í þessum orðrómi (sjaldan lýgur almannarómur) enda er þetta ein leið til að græða peninga, það er að skapa óróla á markaði eftir að teknar hafa verið skortstöður gegn hlutabréfi eða mynt. Ekki er ólíklegt að frændur okkar hafi verið pirraðir út í skæruhernað Íslendinga á þeirra mörkuðum upp á síðkastið, þá sérstaklega danskir.

Núna sitjum við hins vegar uppi með afleiðingar, gengi í frjálsu falli og verðbólgu í veldisvexti. Fyrir sauðsvartan almúgan er þetta hið versta mál þar sem öll lán hækka, þökk sé verðbótum og vöxtum. Þetta þarf þó ekki að koma fólki á óvart þar sem ansi stór hluti þjóðarinnar hefur verið á neyslufylliríi síðastliðin ár og eins allir þekkja þá er þynnka ekki sérstaklega góð. Hvað er til dæmis búið að kaupa marga nýja bíla á undanförnum 2 árum? Og hvað ætli sé búið að byggja mörg ný hús sem síðan hafa verið seld á uppspengdu verði?

En ekki er hægt að kenna sauðheimskum almúganum um þetta einum, heldur liggur meginástæðan hjá stjórnvöldum (ríki og sveitarfélögum). Hjá til að mynda ríkinu hefur verið gengdarlaus vöxtur og útþensla, þar hefur verið hvatt til framkvæmda (í nafni atvinnusköpunar) og ráðamenn geta ekki komið sér saman um efnahagsstefnuna. Þeir bara demba því á Seðlabankann sem eingöngu getur hækkað vexti (þar sem hann hefur ekki önnur tæki í sínu vopnabúri). Síðan þegar allt er komið í þrot þá bara kenna menn Eflingarkonum um allt saman.

Þetta er Ísland í dag! Áfram Ísland!

:: Gmaríus fimmtudagur, apríl 13, 2006 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, apríl 12, 2006 ::
SCHNILLD!!

Gefið ykkur smá tíma í að horfa á þetta!

Heat Vison and Jack

:: HauXon miðvikudagur, apríl 12, 2006 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, apríl 10, 2006 ::
VONDIR SKEMMTISTAÐIR

Fór á Thorvaldsen á laugardagskveld í fyrsta skipti. Átti heldur betur von á góðu, enda staðurinn með eindæmum vinsæll og biðröð langleiðina upp í Hlíðar. Slapp reyndar við svoleiðis rugl, enda Ríkur hf. En það sannaðist endanlega að fólk er fífl. Staðurinn hafði ekkert að bera. Bylgjumúzik tjúnuð upp með trommuheila.....mínus sinnum mínus er ekki plús! Bara stærri mínus!
Fólkið...já....eftirmarkaðurinn í skakkri mynd, ég hálfskammaðist mín fyrir að vera singúl. Liðið hlóp útúr ölvað og hálfsturlað í múzik-helvíti að reyna klukka næstu singúl útlifuða manneskju áður en sólin kæmi upp. Ég var sem betur fer ekki klukkaður og fór heim.

Já svona er piparsveinalífið ágætu félagar!

:: Halogen mánudagur, apríl 10, 2006 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, apríl 08, 2006 ::
Halló!

dEUS átti stórkostlega tónleika á NASA. Frábært live band, þéttara en uhhh...já....þéttara en andskotinn og meðlimir í miklu stuði. Já, það kemur fleira gott frá Belgíu en konfekt og Sandra Kim. En þið húktuð heima helvítis sófakartöflurnar ykkar!!!

:: Halogen laugardagur, apríl 08, 2006 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, apríl 05, 2006 ::
ÉG ER EKKERT HEIMSKUR!!

Þess vegna ákvað ég að senda þennan póst inn, þrátt fyrir ákveðna hættu á ritskoðun. Hins vegar vil ég ekki vera að halda einhverjar einræður hér og þess vegna stofnaði ég mitt eigið prívatblogg um daginn. Þeir sem hafa áhuga geta kíkt á www.valgardur-lyngdal.blogspot.com

:: Valgarduz miðvikudagur, apríl 05, 2006 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, apríl 02, 2006 ::
Ég er búinn að komast að því að ég er heimskur! Það tók mig 33 ár og 8 mánuði. Næsta próf: Grevigreind...

:: HauXon sunnudagur, apríl 02, 2006 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?