:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: fimmtudagur, apríl 13, 2006 ::

Skandinavíska árásin!

Áhugaverðir þessi orðrómur um sameignlega "árás" nágranna okkar Dana og Norðmanna á íslensku krónuna. Vel má vera að það sé margt rétt í þessum orðrómi (sjaldan lýgur almannarómur) enda er þetta ein leið til að græða peninga, það er að skapa óróla á markaði eftir að teknar hafa verið skortstöður gegn hlutabréfi eða mynt. Ekki er ólíklegt að frændur okkar hafi verið pirraðir út í skæruhernað Íslendinga á þeirra mörkuðum upp á síðkastið, þá sérstaklega danskir.

Núna sitjum við hins vegar uppi með afleiðingar, gengi í frjálsu falli og verðbólgu í veldisvexti. Fyrir sauðsvartan almúgan er þetta hið versta mál þar sem öll lán hækka, þökk sé verðbótum og vöxtum. Þetta þarf þó ekki að koma fólki á óvart þar sem ansi stór hluti þjóðarinnar hefur verið á neyslufylliríi síðastliðin ár og eins allir þekkja þá er þynnka ekki sérstaklega góð. Hvað er til dæmis búið að kaupa marga nýja bíla á undanförnum 2 árum? Og hvað ætli sé búið að byggja mörg ný hús sem síðan hafa verið seld á uppspengdu verði?

En ekki er hægt að kenna sauðheimskum almúganum um þetta einum, heldur liggur meginástæðan hjá stjórnvöldum (ríki og sveitarfélögum). Hjá til að mynda ríkinu hefur verið gengdarlaus vöxtur og útþensla, þar hefur verið hvatt til framkvæmda (í nafni atvinnusköpunar) og ráðamenn geta ekki komið sér saman um efnahagsstefnuna. Þeir bara demba því á Seðlabankann sem eingöngu getur hækkað vexti (þar sem hann hefur ekki önnur tæki í sínu vopnabúri). Síðan þegar allt er komið í þrot þá bara kenna menn Eflingarkonum um allt saman.

Þetta er Ísland í dag! Áfram Ísland!

:: Gmaríus fimmtudagur, apríl 13, 2006 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?