| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: þriðjudagur, maí 23, 2006 ::
KOSNINGAR
Erum menn búnir að ákveða sig?
:: Halogen þriðjudagur, maí 23, 2006 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, maí 21, 2006 ::
Afmæliskveðja frá Ríkum til Ríks
Sendum fjelaga Kristalli bestu kveðjur í tilefni dagsins.
Hann lengi lifi!
:: Gmaríus sunnudagur, maí 21, 2006 [+] ::
...
|
:: laugardagur, maí 20, 2006 ::
GARÐAVÖLLUR
 MÓT MÓTANNA - Rykir Cup
Þar sem þriðjudagurinn er át langar mig að leggja til næsta miðvikudag. Miðvikudagurinn er þeim kostum gæddur að ég er búinn í prófunum auk þess sem almættið hefur gefið okkur frídag daginn eftir. Það er víst stórmót á Garðavelli um helgina en ég held að það ætti að vera hægt að fá að spila á miðvikudeginum.
Nú legg ég til að nefdarmenn pósti komment með svari um hvort þetta gangi upp. Ef svo er ekki skal viðkomandi koma með aðra tillögu. Ef fólk er orðið þreytt á að vera á Skaganum getum vér tekið átið og sötrið hér í KR hverfinu. Ef menn losna fljótlega eftir hádegi væri möguleiki á að spila á öðrum velli, td. í Vogum, Hveragerði, Selfossi, Grindavík, Kef. osfrv.
Kveðja, Stúdentinn síkáti
:: HauXon laugardagur, maí 20, 2006 [+] ::
...
|
:: föstudagur, maí 19, 2006 ::
Svo bregðast krosstré sem önnur tré!
Silvía Nótt fulltrúi Ríkra í Júróvísjón þetta árið komst ekki áfram í lokakeppnina. Það er greinilegt að Austantjaldsblokkin hefur öll tekið sig saman um að hindra frekari framrás Ríkra um heiminn. Þarna er þó aðeins um tímabundið "setback" að ræða. Því að á næsta ári mætum við tvíefldir til leiks! Því til stuðnings vil ég benda fólki á síðu 43 í 133. tölublaði, 6 árgangi af Baugstíðindum (aka. í dag), þar gefur að líta leynivopn okkar í næstu keppni. Undirbúningur er þegar hafinn, lagið klárt, dansar, búningar og alles.
Til hamingju Ísland!
:: Gmaríus föstudagur, maí 19, 2006 [+] ::
...
|
Um Hvítkúlukeppni!
Fyrir nokkru bentu menn á nauðsyn þess að skipulagssvið Ríkra yrði virkjað í þeim tilgagni að finna dagsetningu á árlega Hvítkúlukeppni Ríkra. Undir það tek ég heillshugar, því ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Undirritaður og Hauxon hafa meira að segja hafið æfingar fyrir hina miklu keppni. Skemmst er frá því að segja að við héldum á völl einn í Leyni og lékum okkur þar að 19 holum. Árangur okkar var framar vonum enda ekki við öðru að búast þar sem við nutum dyggrar leiðsagnar Íþróttaálfsins. Varðandi mögulegar dagsetingar þá legg ég til eftirfarandi:
- Næsti þriðjudagur. Mjög hentugur. Veit að Hauxon er til í að halda upp á próflok. Halogenið er alltaf tilbúinn að viðra krumpugallann. Valgardus og Kristallur vilja örruglega skrópa í vinnunni og sjálfur tel ég litlar líkur á því að Mini Mar verði kominn í heiminn til að raska leik. Síðan spillir ekki fyrir að veðurspáin er hagstæð "Hvöss norðanátt með snjókomu og síðar slyddu, en þurrt S-lands. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst."
- Einhver dagsetning í seinni hluta júní. Frekar hentugt. Mini Mar líklega kominn í heiminn og því ekki seinna vænna að fara að venja komur hans á völlinn. Er búinn að útbúa sérstaka aðstöðu fyrir hann í golfpokanum. Enda golfið fjölskyldusport. Hins minnir mig að á þessum tíma hafi hluti Ríkra lagst í víking suður um höf, svo þetta gengur líklega ekki upp nema að menn spili á 2-3 mismunandi völlum í einu.
Fjelagar, bregðumst ekki aðdáendum vorum. Finnum góðan dag fyrir Hvítkúlukeppnina áður en snjóa fer á ný.
:: Gmaríus föstudagur, maí 19, 2006 [+] ::
...
|
:: fimmtudagur, maí 18, 2006 ::

Sælir æstu aðdáendur og fjelagar.
Mér áskotnaðist ein mynd í dag. Ég tel hana taka af allann vafa um að Framsóknarflokkurinn er bara glæpasamtök. En dæmi nú bara hver fyrir sig.
:: Gmaríus fimmtudagur, maí 18, 2006 [+] ::
...
|
:: mánudagur, maí 15, 2006 ::
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Í máli Eyþórs "helvítis Míranda" Arnalds.....(sem ég ætla framvegis að kalla Eyþór "fimmta gír") lætur Geir H H H H H Harde hafa eftir sér á mbl.is: „Ég held að sá manndómur sem hann sýnir í þessu máli og tekur á sig, sem hlýtur að vera honum persónulega mjög þungbært, eigi að sýna að Sjálfstæðisflokkurinn víkur sér ekki undan ábyrgð." Aðspurður hversu mikið áfall þetta væri fyrir flokkinn sagði Geir að þetta væri fyrst og fremst persónulegt áfall þessa tiltekna frambjóðanda.
Ágæti forsætisráðherra þetta atvik sýnir EKKI að Sjálfstæðisflokkurinn víkur sér ekki undan ábyrgð...heldur sýnir þetta að þið axlið EINUNGIS ábyrgð ef þið eruð gripnir með buxurnar á hælunum!
:: Halogen mánudagur, maí 15, 2006 [+] ::
...
|
:: sunnudagur, maí 14, 2006 ::

:: Halogen sunnudagur, maí 14, 2006 [+] ::
...
|
:: laugardagur, maí 13, 2006 ::
Kæru meðbræður, um þessar stundir má heyra nið grassins sem grær um grundir og græna velli. Golfvallarstjórar, golfvallahönnuðir, grasfræðingar, slátturtæknar og glompurakarar landsins svífa um eins og hunangsflugur. Rich Open nálgast! Nú er tími fyrir uppástungur! Ég leggt til að við höldum mótið meðan enn er von á hitastigi yfir frostmarki. Nokkur hætta fylgir auðvitað auknu hitastigi, að Halogen ofhitni og spili nakinn. Annars eigið þið ekki möguleika aumingjarnir ykkar!
Sýnum heiminum skipulagssnilli Ríkra! 5 manna hvítkúlunefnd hefur verið sett af stað.
:: HauXon laugardagur, maí 13, 2006 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, maí 09, 2006 ::
<a href="vefslóð">Nafn á link</a> Nota HTML!
:: HauXon þriðjudagur, maí 09, 2006 [+] ::
...
|
:: mánudagur, maí 08, 2006 ::
MÆLI MEÐ ÞESSU http://www.songtapper.com/s/tappingmain.bin Heimasíða fyrir músikalska, sem muna ekki hvað lögin heita........eina sem þarf að gera er að níðast á spacebar-num í takt við lagið...og þá ætti lagið að koma upp......úrvals skemmtun
:: Halogen mánudagur, maí 08, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|