| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: föstudagur, maí 19, 2006 ::
Um Hvítkúlukeppni!
Fyrir nokkru bentu menn á nauðsyn þess að skipulagssvið Ríkra yrði virkjað í þeim tilgagni að finna dagsetningu á árlega Hvítkúlukeppni Ríkra. Undir það tek ég heillshugar, því ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Undirritaður og Hauxon hafa meira að segja hafið æfingar fyrir hina miklu keppni. Skemmst er frá því að segja að við héldum á völl einn í Leyni og lékum okkur þar að 19 holum. Árangur okkar var framar vonum enda ekki við öðru að búast þar sem við nutum dyggrar leiðsagnar Íþróttaálfsins. Varðandi mögulegar dagsetingar þá legg ég til eftirfarandi:
- Næsti þriðjudagur. Mjög hentugur. Veit að Hauxon er til í að halda upp á próflok. Halogenið er alltaf tilbúinn að viðra krumpugallann. Valgardus og Kristallur vilja örruglega skrópa í vinnunni og sjálfur tel ég litlar líkur á því að Mini Mar verði kominn í heiminn til að raska leik. Síðan spillir ekki fyrir að veðurspáin er hagstæð "Hvöss norðanátt með snjókomu og síðar slyddu, en þurrt S-lands. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst."
- Einhver dagsetning í seinni hluta júní. Frekar hentugt. Mini Mar líklega kominn í heiminn og því ekki seinna vænna að fara að venja komur hans á völlinn. Er búinn að útbúa sérstaka aðstöðu fyrir hann í golfpokanum. Enda golfið fjölskyldusport. Hins minnir mig að á þessum tíma hafi hluti Ríkra lagst í víking suður um höf, svo þetta gengur líklega ekki upp nema að menn spili á 2-3 mismunandi völlum í einu.
Fjelagar, bregðumst ekki aðdáendum vorum. Finnum góðan dag fyrir Hvítkúlukeppnina áður en snjóa fer á ný.
:: Gmaríus föstudagur, maí 19, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|