:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: þriðjudagur, október 31, 2006 ::

Áfram Mogginn.

Íslenskt mál verður seint talin mín sérgrein. Hins vegar finnst mér afskaplega gaman þegar ég finn einhvern sem er slakari en ég sjálfur. Mogganum hefur eins og mér verið hælt fyrir gott íslenskt mál. Í kvöld virðist þó sem þeim sé byrjað að förlast flugið. Líklegt verður að teljast að þeir séu komnir með erlenda blaðmenn í vinnu. Þá kemur vart annað til greina en danskir.

Innlent mbl.is 31.10.2006 20:26
Fleiri flytja frá Reykjavíkur en til hennar


Áfram Mogginn.

:: Gmaríus þriðjudagur, október 31, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, október 26, 2006 ::
Jæja, zælir trommuheilar! Á fyrstu dögum væturs fór fram stærsti íþróttaviðburður veraldar. Þar sem Ríkir þurftu m.a. að leysa flækjumál í tónlistarsögunni (við mikinn fögnuð viðstaddra) var verðlaunaafhendingu slegið á frest. Gmariuz sá um útreikninga og samkvæmt þeim bar hann sjálfur sigurorð. Sigurlaunin ásamt öðrum verðlaunum eru í vörzlu Hreimsstaðatröllsins og spurning hvort að Ríkir þurfi ekki að halda jólaglögg og verðlaunaafhendingu. Fyrir aðstandendur yrði bannað að ræða tónlist nema að við séum sammála.

Varðadi Úlfamóðurina þá uppaði ég disknum og bið ég Kristall og Halogen að hlusta og þá heyra þeir kannski að hún minnir nefnilega meira á Black Sabbath en Led Zeppelin, einskona blanda af BS og White Stripes, bara verri.

Kveðja, Bonzo!

:: HauXon fimmtudagur, október 26, 2006 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, október 20, 2006 ::
This just over the news wire!

"I just wanted to see the Stars"

The Hollywood movie star Harrison Ford (64) has been seen in Reykjavik, Iceland. He is there trying to get a glimpse of his idols, the members of Rich Inc or Ríkir hf., as they are called in their native language. According to credible sources, Mr. Ford postponed all his other projects, among movie shoot of his latest movie Red night - blue carpet, when news broke on the Internet that the much talked about Rich where planning a Golf tournament in Iceland.
Rich have been known to keep a low profile at all times, so it has been very hard for people to spot them out, except for special occasion. The blue eyed star rushed north, when information leaked that the Rich would be eating at one of their restaurants in Reykjavik, East India Company. The star had to bribe several people to get a seat in the restaurant last night, but unlucky for him Rich where not seen.
Our sources say that Rich deviously decided to move their table to a later date, which is unknown to our sources and Mr. Ford.

Mr. Ford was reluctant to talk to the media about the incident. "I just wanted to see the Stars" he said with tears in his eyes.

Justin Rogers, CNN

:: Gmaríus föstudagur, október 20, 2006 [+] ::
...
|
Dagskrá XY

9:00 - Valgarduz, Kristallur og hugsanlega ég leggja af stað
9:30 - Restin leggur af stað af malbikinu
10:30 - Mæting á golfvöllinn á Hellu.
10:37 - Vallargjald greitt
10:55 - Kastað upp á hver byrjar
11:00 - Leikur hefst
13:15 - Leikhlé látum steikja hammara fyrir okkur í skálanum.
17:00 - Leik lokið - Ég vinn!
18:00 - Fataskipti og hárgreiðsla fyrir þá sem eru með hár
Spörning um að samræma okkur við frúrnar þegar hér er komið
20:00 - Halogen fræðir okkur um framandi menningarheima og Urban lífstíl
23:00 - Verðlaunaafheding
23:30 - Opin umræða - Hvalveiðar

Verðlaun verða veitt fyrir eftirfarandi:
Styðsta teighöggið
Flest högg sem ná ekki fram yfir kvennateig.
Flest pútt á einni holu.
Flest högg á einni holu.
Flest högg tótal.
Flest högg miðað við forgjöf = Skammarverðlaun
Fæst högg miðað við forgjöf = Sigur
Flottustu fötin

Nú mæli ég með að menn reyni að vinna síðustu verðlaunin. Engar heimasætur að fylgjast með Halli svo að karmellan og hvíti bolurinn er ekki nauðsyn.

Kv. Hrannzkylarius

:: HauXon föstudagur, október 20, 2006 [+] ::
...
|
G O L F S P I L

Ég er búinn að gera könnun á aðstæðum á helstu golfvöllum sv-hornsins. Allir vellir í rvk eru búnir að loka á spil utanfélagsmanna og vel flestir búnir að loka sumargrínum og jafnvel völlunum yfirhöfuð.

Ég náði sambandi við golfvallarstjórann á Hellu og þar er enn allt opið. Vallargjaldið er líka vægt eða 1500 kr. á mann og það er ekkert vandamál að spila 5 saman í holli ef við bara hleypum framúr. Það er reyndar ekki líklegt að við þurfum að standa mikið í því að hleypa framúr þar sem traffíkin er ekki mikil núna. Golfskálinn er opinn frá 10-16 en við getum mætt fyrr ef við viljum. Það er náttúrlega 1.5 klst ferðalag af skaganum á Hellu og tæp klukkustund úr bænum. Held samt að það verði skemmtilegra að spila á sumarflatir.

Jæja, atkvæðagreiðsla!

:: HauXon föstudagur, október 20, 2006 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, október 18, 2006 ::
Áfram SUS!

Nuddið augun, áfram SUS. Ég ætlaði varla að trúa þessu sjálfur, hvað þá að ég ætti eftir að skrifa, áfram SUS. En þeir hafa séð ástæðu til þess að mótmæla útþennslu á öryggisþjónustu landsins.

Öryggisiðnaður ríkisins hefur blásið út stjórnlaust á síðustu árum en þó aldrei jafn hratt og á síðustu 1-2 árum. Ríkislögreglustjóri, sérsveitir, greiningardeild, alþjóðadeild, leynilögregla. You name it they got it. Og það jafnvel þó að fyrir því sé engin lagastoð. Síðan kemst allt í einu upp um einhverjar leynilöggur ofan úr Valhöll og þá er best að þagga málið í hel og horfa til framtíðar.
Vissulega er eitthvað af þessu nauðsynlegt, glæpasamfélagið hefur breyst mikið á síðustu árum. Þetta eru ekki lengur bara einhverjir rollu riðlarar og fullir karlar með tóma haglabyssu. En fyrr má nú rota en dauðrota. Ég bara neita að trúa því að það standi svo svakaleg ógn að landinu, frá hendi annars ríkis eða skipulagðra hryðjuverkasamtaka að það sé nauðsynlegt að auka valdheimildir lögreglu og annara yfirvalda eins og hugmyndir eru uppi um. Ég er tilbúinn að taka þá áhættu sem því kann að fylgja.

Ágætt hjá Borgari Þór og SUS að fara svona ákveðið fram í þessu máli. Bíddu, já það eru að koma kostningar.

Áfram SUS, að minnsta kosti í þessu máli.

:: Gmaríus miðvikudagur, október 18, 2006 [+] ::
...
|
Eru íslendingar heimskingjar?

Þú hugsar líklega nei, no way. En ég er byrjaður að velta því alvarlega fyrir mér hvort stór hluti okkar sé ekki alveg að hugsa hlutina til enda. Við erum búin að fjalla mikið um virkjanir og landnýtingu og sitt sýnist hverjum. Í gær þaut svo þjóðrembingurinn upp úr öllu valdi þegar sjávarútvegsráðherra fannst tímabært að hefja hvalveiðar. Blásið var í lúðra, gömlum hvalföngurum smalað niður á bryggju, gamli riðdallurinn, Hvalur 9 settur í gang og byssan hlaðin. Nú skyldi sýna heimsbyggðinni að við þorum sko að veiða hvali, hvað svo sem öðrum finnst um það.
Ég hef alltaf verið fylgjandi veiðum af ýmsum toga, svo lengi sem menn sjái fyrir sér að nýta afurðirnar til matar. En hvalveiðar, come on, nú á að veiða 9 Langreyðar og 30 Hrefnur af því að við erum með svo mikla þjóðrembingsvitund (og það eru nokkrir mánuðir í kosningar).
Hvað ætlum við svo að gera við kjötið. Það veit varla nokkur maður, þá síður hvar á að verka það. Heimska, heimska þjóð.
Já þjóð því að samkvæmt einhverri Gallup, sorry Capacent könnun þá eiga rúm 90 og eitthvað prósent þjóðarinnar að vera fylgjandi því að veiða hvali. Til hvers? Við getum varla sjálf étið þessar aumu 30 hrefnur sem voru veiddar í tilraunaskyni í fyrra og á þessu ári.

Í staðin þá viljum við fá aðra upp á móti okkur, skapa óróa hjá ferðaþjónustu aðilum og fisksölum auk þess að umhverfissamtök finna sér tylliástæðu til að tala illa um okkur.
Hver hagnast? Kristján Loftsson? Ég efa það. Ef dallurinn kemst þá heill aftur í höfn þá efa ég að þessir fáu hvalir, jafnvel þó þeir væru 150 skapi svo mikil verðmæti að það sé þess virði að standa í þessu. Af hverju hefur karlinum ekki dottið í hug að nota þessar skekktur sínar í hvalaskoðunartúra. Mætti öruglega selja það frekar enn hvalkjöt.

Heimska þjóð, heimski ráðherra, heimska þing!

Undirritaður telst til þessara innan við 10% þjóðarinnar sem telur það ekki þess virði að veiða hvali, að minnsta kosti ekki meðan það er ekki fyrirhafnarinnar virði. Hvalkjöt er gott en ekki svona gott.

Ps. Flaggaði einhver í gær í tilefni dagsins?

:: Gmaríus miðvikudagur, október 18, 2006 [+] ::
...
|
Heil og sæl

Ég er búinn að panta borð fyrir níu á Austur-Indíafélaginu á laugardagskvöldið, þannig að það mál er hérmeð tekið úr umræðu. Hvað golfspilun varðar er útlitið heldur verra. Vellirnir á höfuðborgarsvæðinu eru að loka hver af öðrum vegna frosts, og að sjálfsögðu er fyrst lokað á utanfélagsmenn. Það er því spurning hvort einhverjir ykkar sunnanmanna hafi ítök inn í golfklúbbana þar og geti togað í spotta til að redda okkur rástíma á laugardag. Annars verðum við bara að fara í hermi...

kveðja

:: Valgarduz miðvikudagur, október 18, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, október 12, 2006 ::
Sælir félagar Ríkir

Þar sem ég gerðist á sínum tíma að mínu eigin frumkvæði formaður golfmótsráðs Ríkra h/f tel ég það skyldu mína að eiga upphaf að ráðagerðum Ríkra varðandi allt það sem snýr að árlegu golfmóti okkar. Jafnframt áskil ég mér rétt til að leiða til lykta hver þau mál sem mér sýnist er viðkoma umræddu móti. Varpa ég hér með eftirfarandi hugleiðingum til Ríkra og óska eftir svörum sem allra fyrst:

Laugardagur 21. október

Klukkan 12.00: Golfspilun hefst. Undirritaður stingur upp á Korpuvelli sem fyrsta vali á keppnisvettvangi. Sá völlur liggur nærri íbúðabyggð og því tilvalið að við í örlæti okkar leyfum almúganum að verða vitni að snilldinni. Á þessum árstíma ætti heldur ekki að vera erfitt að fá rástíma þótt á laugardegi sé. Frúr Ríkar "skipuleggi" eigin dægradvöl á meðan á stórmótinu stendur.

-Eftir golfmót tekur við böðun og spariföt. Væri kannski ekki úr vegi að skella sér saman í heitan pott og gufu.

Klukkan 18.00: Hittumst öll í okkar besta pússi heima hjá einhverjum þeirra Ríkra sem búsettir eru sunnan Hvalfjarðar. Fordrykkir, tónlistargetraunir og uppbygging stemmningar fyrir kvöldið. Síðan verði farið saman út að borða....

Og þá eru það valkostirnir fyrir kvöldverðinn:
-Kostur 1: Villibráðarhlaðborð í Perlunni. Verð kr. 6.590 á mann
-Kostur 2: Apótekið - hópmatseðill (3 réttir) er á kr. 4000 - 5300 á mann. Ef hver pantar fyrir sig fer maður léttilega upp í 6700 krónur fyrir 3ja rétta máltíð.
-Kostur 3: Einar Ben - hópmatseðill (3 réttir) ca. kr. 5700 á mann. 3ja rétta máltíð annars á svipuðu verði og á Apótekinu.
-Kostur 4: Galileo (ekki Brutus, sko)- 3ja rétta máltíð fer léttilega upp í kr. 6300 á mann. Hópmatseðlar gilda ekki fyrir færri en tólf þannig að sá möguleiki er ekki fyrir hendi.

-Öll verð hér að ofan eru að sjálfsögðu án drykkja. Ef hópmatseðlar verða fyrir valinu, þá verða allir að borða sömu þrjá réttina. Undirritaður tæki að sér að velja og panta, enda með ágæta innsýn í matarsmekk Ríkra.

Nú vil ég fá viðbrögð sem allra fyrst. Sérstaklega ef menn eru spenntir fyrir villibráðinni í Perlunni, því það er óðum allt að fyllast þar. Leiðum þessa ráðagerð okkar til lykta sem allra fyrst

kveðja

:: Valgarduz fimmtudagur, október 12, 2006 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, október 06, 2006 ::
Það er alveg ljóst að Valgerður Sverrisdóttir er ekki vel greindur ráðherra og stjórnmálamaður. Því eins og Halldór Blöndal orðaði það svo réttilega í afmæli hennar, "...þá er hún [Valgerður] ekki greindust þeirra systra".

Þar af leiðandi hefur það verið afskaplega skemmtilegt að fylgjast með henni leika aðalhlutverkið í "rússneska sprengjuflugvélamálinu".

Þannig er í pottinn búið að Flugmálastjórn vissi ekki um þessar vélar og æfingar. Ratsjárstofnun veit ekki hvort þeir vissu eitthvað um málið vegna þess að þeir voru að skipta um símanúmer (1-900-SEX-DIAL). Og sjálft rússneska sendiráðið vissi ekkert um þetta mál, að minnsta kosti ekki fyrir fram. Hins vegar virðist, ef eitthvað er að marka Álgerði, Útgerði, Valgerði að hún hafi vitað af umræddum heræfingum deginum áður en þær voru haldnar.

Maður getur því ekki annað en velt því fyrir sér hvort:
  • Valgerður eigi rússneskan ofursta fyrir elskhuga.
  • Valgerður sé sjálf í rússneska hernum.
  • Valgerður sé skyggn.
  • Valgerður segi ekki satt frá

Þar af leiðir sú spurning hvort Valgerður sé ekki orðin ógn við þjóðaröryggi og þar með komist hún sjálfvirkt á hlerunarlista Valhallar. Síðan er alveg borðleggjandi að leynilögga Bjössa Bje (aka Greiningardeild) þarf að greina Valgerði, því ekki veitir af miðað við allt bullið frá henni.


:: Gmaríus föstudagur, október 06, 2006 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, október 05, 2006 ::
Búinn að sitja heima í tvo daga vegna ælupestar sem herjað hefur á hvern fjölskyldumeðliminn á fætur öðrum undanfarna vikuna. Vona bara að við höfum ekki smitað neinn á heimilum Hauxonar og Kristalls um liðna helgi. Í miðri grámyglunni er mig farið að dauðlanga í GOLF. Var ekki komin örugg dagsetning á golfmót Ríkra þann 21. október? Ég er allavega búinn að gera ráð fyrir því í mínum plönum.

Verð síðan að minnast á það hversu krúttlegur vikulisti Gmaríusar er hér á síðunni. Þetta er alveg agalega sætt :-)

:: Valgarduz fimmtudagur, október 05, 2006 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?