| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: miðvikudagur, október 18, 2006 ::
Eru íslendingar heimskingjar?
Þú hugsar líklega nei, no way. En ég er byrjaður að velta því alvarlega fyrir mér hvort stór hluti okkar sé ekki alveg að hugsa hlutina til enda. Við erum búin að fjalla mikið um virkjanir og landnýtingu og sitt sýnist hverjum. Í gær þaut svo þjóðrembingurinn upp úr öllu valdi þegar sjávarútvegsráðherra fannst tímabært að hefja hvalveiðar. Blásið var í lúðra, gömlum hvalföngurum smalað niður á bryggju, gamli riðdallurinn, Hvalur 9 settur í gang og byssan hlaðin. Nú skyldi sýna heimsbyggðinni að við þorum sko að veiða hvali, hvað svo sem öðrum finnst um það. Ég hef alltaf verið fylgjandi veiðum af ýmsum toga, svo lengi sem menn sjái fyrir sér að nýta afurðirnar til matar. En hvalveiðar, come on, nú á að veiða 9 Langreyðar og 30 Hrefnur af því að við erum með svo mikla þjóðrembingsvitund (og það eru nokkrir mánuðir í kosningar). Hvað ætlum við svo að gera við kjötið. Það veit varla nokkur maður, þá síður hvar á að verka það. Heimska, heimska þjóð. Já þjóð því að samkvæmt einhverri Gallup, sorry Capacent könnun þá eiga rúm 90 og eitthvað prósent þjóðarinnar að vera fylgjandi því að veiða hvali. Til hvers? Við getum varla sjálf étið þessar aumu 30 hrefnur sem voru veiddar í tilraunaskyni í fyrra og á þessu ári.
Í staðin þá viljum við fá aðra upp á móti okkur, skapa óróa hjá ferðaþjónustu aðilum og fisksölum auk þess að umhverfissamtök finna sér tylliástæðu til að tala illa um okkur. Hver hagnast? Kristján Loftsson? Ég efa það. Ef dallurinn kemst þá heill aftur í höfn þá efa ég að þessir fáu hvalir, jafnvel þó þeir væru 150 skapi svo mikil verðmæti að það sé þess virði að standa í þessu. Af hverju hefur karlinum ekki dottið í hug að nota þessar skekktur sínar í hvalaskoðunartúra. Mætti öruglega selja það frekar enn hvalkjöt.
Heimska þjóð, heimski ráðherra, heimska þing!
Undirritaður telst til þessara innan við 10% þjóðarinnar sem telur það ekki þess virði að veiða hvali, að minnsta kosti ekki meðan það er ekki fyrirhafnarinnar virði. Hvalkjöt er gott en ekki svona gott.
Ps. Flaggaði einhver í gær í tilefni dagsins?
:: Gmaríus miðvikudagur, október 18, 2006 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|