| Vikulistinn (halogen) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (gmarius) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (hauxon) |
| - - - - - - - - - - |
|
| Vikulistinn (kristallur) |
| - - - - - - - - - - |
 |
| Vikulistinn (Valgarduz) |
| - - - - - - - - - - |
| [::..Eldra stuff..::] | |
|
|
:: mánudagur, janúar 29, 2007 ::
Síðasta helgi var um margt svo merkileg.
Hæst ber þar nýjan þjóðsöng sem Ríkir útnefndu eftir vandaða og mikla yfirlegu. Frjálslyndir klofnuðu í herðar niður (sjá síðasta pistil). Hraustlegur vindur blés um pólitíkina úr óvæntri átt.
Einhver mesti stjórnmálamaður sem þjóðin hefur alið, Jón Baldvin Hannibalsson lét í sér heyra. Hann vandaði "barninu" sínu, Samfylkingunni og formanni flokksins ekki kveðjurnar. Þar voru orð í tíma töluð!
Samfylkingunni hefur gengið alveg afskaplega illa að koma stefnu sinni og skoðunum á framfæri við kjósendur. Það er að minnsta kosti skoðun kjósenda þar sem að fylgi við flokkinn hefur vart mælst minna og ef heldur fram sem horfir, þá munu Vinstri grænir verða stærri en hann.
Það hefur oft komið fram hér á blogginu að ég hef ekki sterkar taugar til Samfylkingarinnar. Ég er líklega eins og hin rúm 80% þjóðarinnar sem ekki treystir þingmönnunum (eins og formaðurinn) og áttar sig ekki á stefnu þeirra. Það er ekki mitt vandamál heldur þeirra og þeirra sjálfra að leysa.
En þegar Jón Baldvin opnar munninn, jafnvel þó að það séu liðin fjölda mörg ár síðan hann var opinberlega í pólitík, þá hlustar fólk. Og þar með talin er ég líka. Það skildi þó aldrei vera að til yrði raunverulega umhverfissinnaður jafnaðarmannaflokkur. Ef svo fer, þá er ekki ólíklegt að hann fengi atkvæði frá mér og þar með nyti hann velþóknunar Ríkra!
:: Gmaríus mánudagur, janúar 29, 2007 [+] ::
...
|
Rúinn trausti!
Frjálslindi flokkurinn er rúinn trausti eftir þau átök sem hann hefur gegnið í gengum síðustu vikurnar. Uppistandið á landsfundi flokksins kórónaði vitleysuna. Það sannaðist síðan í kvöld að flokkurinn er klofinn með úrsögn Margrétar Sverrisdóttur. Ljóst er að hinir flokkarnir vilja gjarnan njóta starfskrafta hennar og því verður spennandi að fylgjast með því hvar hún sest að í pólitík.
Hins vegar er ljóst að það bíður erfitt starf þeirra Adda Kidda Gau og Magnúsar Þórs að stoppa lekann og byggja upp traust á ný.
Mér er hins vegar nokk sama hvernig þeim vegnar við það verk þar sem þessi blessaði flokkur höfðar ekki til mín á landsvísu.
Það er hins vegar alveg ljóst að nú hriktir í kaffibandalaginu hjá stjórnarandstöðunni. Í það minnsta var Stefán Jón Hafstein ekki ánægður með það samstarf í sjónvarpinu í kvöld. Kallaði það mistök. Það má vel vera að það sé rétt, alla veganna tel ég að staða frjálslyndra sé orðin frekar slæm. Eða ætli Stefán sé kannski kominn strax með óbragð í munninn við það að sleikja rassgatið á einhverjum sjálfstæðismanninum. Það skildi þó aldrei vera að valdaþráin sé orðin svo mikil að þeir gæðingar sem mest hafa talað um klúður sjálfstæðismanna og framsóknarmanna séu byrjaðir að dreyma blauta drauma um það að komast í bólið hjá þeim. Það er í það minnsta ekki góður draumur í mínum huga. Ójbjakk, nei takk
:: Gmaríus mánudagur, janúar 29, 2007 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, janúar 23, 2007 ::
Kæru félagar
Þá er það helgarferðin og skipulagið. Ég er búinn að taka tvö lambalæri úr frysti, ætla að leyfa þeim að þiðna í nótt og á morgun verða þau snyrt og lögð í krydd. Þar með er komið kjötið í sameiginlega máltíð á laugardag. Þá er bara spurning um meðlæti með lambinu og eins hvort við ætlum að hafa eitthvað sameiginlegt á föstudeginum líka. Eigum við kannski að stefna á að fara saman í búð á föstudaginn?
Hvenær er fólk annars búið að vinna á föstudag? Við þurfum hugsanlega að koma börnunum okkar suður í pössun þannig að það er óvíst hvenær við getum lagt af stað.
En eruð þið annars ekki sátt við þetta, þ.e. að ég sjái um kjötið fyrir laugardaginn? Það verður þá slegið saman í léttan kvöldverð á föstudag, grill á laugardagskvöld, að öðru leyti sjái hver um sig.
Er annars ekki grill í þessum bústað? Er annars ekki heitur pottur í þessum bústað? Er annars ekki stemming fyrir þessari bústaðarferð? Ég er a.m.k. farinn að hlakka mikið til. Þetta verður bara gaman, singstar, handbolti og allt. Er annars ekki sjónvarp í þessum bústað?
kveðja
:: Valgarduz þriðjudagur, janúar 23, 2007 [+] ::
...
|
Fjelagar Nú er komið að því að við veljum nýjan þjóðsöng handa lýðnum. Valið verður lýðræðislegt og fer fyrst fram forval þar sem hver meðlimur kemur með 2 tilnefningar. Þau lög sem hljóta flest atkvæði (2 eða fleiri) fara í úrslit og fer þá fram úrslitakosning. Ef upp koma vafamál verða þau leyst með störukeppni í bústaðnum.
Mínar tilnefningar:
One More - Medicine Gouge Away - Pixies
:: Halogen þriðjudagur, janúar 23, 2007 [+] ::
...
|
:: þriðjudagur, janúar 02, 2007 ::
Sælir kammeratar,
gerði smá úttekt á orlofshúsi og sá að VR er með húsið sem gæti hentað okkur, Minni-borg í Grímsnesi. Spurning hvort Halli gæti athugað hvort hann geti tekið húsið. Húsið virðist laust allar helgar á næstunni.
Þær helgar sem myndu henta okkur væru: 12.-14. jan, 26. -28. jan og 9. -11. feb.
Ég lofa svo að ræða ekki pólitík í ferðinni :P
:: HauXon þriðjudagur, janúar 02, 2007 [+] ::
...
|
|
[::..Þóknanlegt..::]

Danskir teiknarar!

Jón Baldvin

Max Headroom

Seona Dancing

Türkmenbashy


STÓRVAL
[::.Tvífarinn.::]

Mugi jón Hafstein-son

William H. Macy
Hauxon á MSN
|