:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: miðvikudagur, maí 28, 2003 ::

Sælir fjelagar.

Nú er nokkuð langt um liðið síðan ég kom síðast visku minni að hérna inn netmiðli Ríkra. Þar er um að kenna hinni umræddu "bláu hönd". Svo virðist sem hún hafi með einhverjum ótrúlegum hætti náð tökum á ofurtölvu minni, með þeim afleiðingum að ég hef ekki getað skráð mig inn á bloggið. En örvæntið ei fjelagar, ég hef séð við þessu fólsku bragði.

Varðandi Júróvísíon langar mig að taka eftirfarandi fram. Ég ákvað að fara úr landi á meðan keppnin fór fram til að hindra að hin illu öfl sem af henni stafa næðu ekki tökum á mér líkt og "bláa höndin" gerði tímabundið. Að vísu hef ég horft á keppnina á fast forward og verð ég að segja að ekki þótti mér mikið til hennar koma. Það var helst Austurríki sem skaraði framúr. Varðandi framlag okkar á næsta ári þá legg ég til send verði sveit vaskra manna, nefnilega við sjálfir. Og síðan til að tryggja okkur sigur þá munum við hagræða hlutum á þann veg að ekkert hljóð muni heyrast frá útsendingunni á meðan aðrar þjóðir flytja sín lög. Og að þegar að símakostningunni kemur þá verði aðeins hægt að velja eina þjóð, okkur, auk þess sem ríflegt framlag renni af símreikningi viðkomandi í okkar digru vasa.

Varðandi litlu Landsímamennina, þá langar mig að nota tækifærið og hrósa þeim fyrir góða hugmynd. Merkilegt að almúgamanni skuli hafa dottið svona lagað í hug. Þess þarf vart að geta að Ríkir hf hafa notað þessa leið fjármögnunar árum saman, svo ekki er um neitt nýmæli að ræða. Einnig þá lagar mig að taka undir með fyrri ræðumönnum og ítreka það, að það er allt í lagi að stela frá Landsímanum, hann er af hinu illa.


:: Gmaríus miðvikudagur, maí 28, 2003 [+] ::
...
|
Svo er Erika Badu hvít. Allir vita að Erika Badu er Marge Simpson og túrbaninn er bara til að fela bláa hárið. ... ehumm nei það var Macy Gray? waddever.....

:: HauXon miðvikudagur, maí 28, 2003 [+] ::
...
|
Ef við tökum þá leiðinlegu áhrif sem Motown hefur haft á tónlistarstefnur undanfarinna ára tek ég undir að óhætt væri að sprengja Motown (Lionel Richie breytti skoðun minni). En ég legg til að í leiðinni verði allir plötuútgefendur settir á sprengjulistann nema 4AD. Þeir ágætu listamenn sem verða samningslausir geta þá gefið efnið sitt út á netinu, enda eru Ríkir löngu hættir að kaupa músík.

:: HauXon miðvikudagur, maí 28, 2003 [+] ::
...
|
Hvað er að Commodores?

:: HauXon miðvikudagur, maí 28, 2003 [+] ::
...
|
Now I'm easy
Easy like a Sunday morning

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 28, 2003 [+] ::
...
|
Frekar en að kallast Semi-Ríkir eða Ríklingar gætu þá Landssímaruplararnir ef til vill fengið nafnbótina "Sníkir".

Ek vil í annan stað taka undir undrun hins undursnjalla HauXonar á undarlegum yfirlýsingum Kristalls. Að mínu viti leynast margar perlur tónlistarsögunnar í flóru þeirri er kennd hefur verið við Motown og alger óþarfi að dissa það ágæta menningarfyrirbæri.

Hins vegar er það ljóst að til að sigra einhverntíma í Júravisjón hafa Íslendingar aðeins val um tvennt; annað hvort að sökkva sér enn dýpra í fen ömurlegheitanna en hingað til, eða þá að rísa sem fuglinn Fönix upp fyrir lágkúruna og senda sanna afburðamenn í keppnina. Verði fyrri leiðin valin, þá sendum við fimmundarsöng í nútíma R&B útgáfu með tilheyrandi rassadilli og klæðakasti. Hins vegar vorum við sorglega nærri seinni leiðinni þetta árið, og aðeins 12 ára stelpur með ódýrar Nókíur og frelsiskort sem komu í veg fyrir að Leðjan næði að hræra upp í Júrógeðinu.

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 28, 2003 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, maí 27, 2003 ::
Atburðir síðustu daga sýnir að það að vera Ríkur snýst ekki um að hafa peninga á einhverjum tímapunkti eins og e.t.v. einhverjir halda að þeir séu núna. Aðeins fimm útvaldir öðlingar geta með sanni borið þá nafnbót. Þremenningarnir umræddu fá hrós fyrir áræði og hugmyndaauð, því vissulega er Landssíminn handbendi hins illa og féð því illa fengið í upphafi rétt eins og fé Orkuveitunnar. Ég treysti því að Halogeninn sé á fullu í að sækja það fé aftur er vér höfum greitt í ránssjóði Orkuveitunnar.

Svo að við tæpum á hljómlistinni aðeins. Undrar mig Motown fyrirlitning Kristalls, honum er ég innilega sammála um það sem er kallað R&B í dag en það á ekkert skilt við Motown. Motown ól af sér skemmtilega tónlistarflóru fönks, sóltónlistar og frumdiskós. Það sem kallast R&B í dag er bara pródúserað svuntuþeysara rusl samið og útsett af hvítum feitum, sveittum, miðaldra köllum með skalla. Eina sem svarta fólkið gerir er að jarma inn á lögin og dilla bossanum í myndböndum. Á tímum Motown komu ferskir svartir tónlistarmenn/konur inn til þeirra sem kunnu á hljóðfæri og jafnvel að semja lög eins og Stevie Wonder.

:: HauXon þriðjudagur, maí 27, 2003 [+] ::
...
|
Já eða Ríklingur

:: Halogen þriðjudagur, maí 27, 2003 [+] ::
...
|
Nú er spurning hvort Ríkir fari ekki að veita nafnbótina "Semi-Ríkur" þeim mönnum sem Ríkir hafa velþóknun á. Hvað segið þið til dæmis um Kristján Ra og bróður hans, stóra Landsímamanninn? Þeir hrintu náttúrlega í framkvæmd þessari einföldu lífsspeki:

"Ef ég held á peningum, þá sting ég þeim að sjálfsögðu í vasann".

Semi-Ríkir eller hur!

:: Valgarduz þriðjudagur, maí 27, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 26, 2003 ::
Nú er spurning hvort Íslendingar taki ekki til við þá þjóðlegu iðju að herma eftir því sem vel hefur gengið í öðrum löndum. Tyrkneska lagið er einhvers konar samsuða úr tyrkneskri þjóðlagahefð og nútíma R&B-takti. Það væri kannski ekki vitlaust að búa til lag í anda íslenskrar rímnahefðar eða með fimmundarsöng og mylja síðan undir það einhverjum drynjandi R&B bassatakti og senda í undankeppnina næsta ár. Vann ekki MA söngkeppni framhaldsskólanna í ár með R&B útgáfu af vísum Vatnsenda-Rósu?

Annars var uppáhalds tónlistarmaðurinn minn í þessari keppni bassaleikarinn hjá Bosníu-Hersegóvínu (að mig minnir) sem mætti á svið með risavaxinn sex strengja bassa og spilaði síðan einn tón í gegnum allt lagið.

:: Valgarduz mánudagur, maí 26, 2003 [+] ::
...
|
Mér finnst nú ekki skipta máli hvort 12 ára stúlkur kjósa sigurlagið í Evrósjónó þar sem megin þorri almúgans hefur hvort eð er ekki meira vit en 12 ára stúlku kindur. Svo sigruðu Tyrkir með lagi sem var stolið frá Stuðmönnum "Þegar ég er nakinn vil ég vera ber .. aha aha" Ég hélt með Austuríkismanninum.

:: HauXon mánudagur, maí 26, 2003 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, maí 24, 2003 ::
Kveldið!
Þá er hin sorglega viðlagakeppni afstaðin. X son of Hau reyndist sannspár og 9. sætið er okkar. Íslendingar keppast nú væntanlega um að klappa á bakið á hvorum öðrum og fagna fengnum árangri. En um leið undrast á að fá ekki fleiri stig. Ég segi þið eruð vesalingar. Allt í einu fá allir áhuga á keppninni og fólk hópast út um allan bæ með fána, snakk og bjór og fagna þessu frábæra framlagi, en enginn þeirra kaus samt lagið á sínum tíma. Það voru 12 ára smástelpur með spangir og frelsisskort sem eyddu síðustu dropunum í að velja Willie Nelson sem framlag Íslendinga. 12 ára stelpur hafa aldrei rétt fyrir sér og allra síst í músik. 12 ára stelpur mega ekki aka bíl.12 ára stelpur mega ekki kaupa áfengi. 12 ára stelpur mega ekki fara skemmtistaði. 12 ára stelpur mega ekki vera úti eftir 10. 12 ára stelpur mega ekki horfa á Sopranos. 12 ára stelpur mega ekki láta taka sig. 12 ára stelpur mega ekki kjósa í sveitastjórnarkosningum. 12 ára stelpur mega ekki kjósa í alþingiskosningum. Afhverju í andskotanum er þeim þá treyst til að hafa skoðun þegar kemur að vali á fulltrúa Íslendinga í sönglakeppni. Það er fullkomin heimska að ætlast til að Íslendingar komist hærra en 9. sæti þegar svona er staðið að valinu. Í raun áttum við ekkert sæti skilið. Meira segja botninn er of góður fyrir þessa viðbjóðslegu tónasamsuðu sem sumir kalla lag.

:: Halogen laugardagur, maí 24, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 23, 2003 ::
Schælir phjelagar!

Ég mæli nú bara með að menn fái sér Pipp súkkulaði, þó svo að leðjan myndi aldrei auglýsa Pipp, það væri kannski frekar Páll Óskar sem gerði það. Það sem er skemmtilegast við við lag Birgittu er dæmigerðleiki þess. Við gerð lagsins hefur höfundur passað sig vandlega á að skara hvergi fram úr á neinu sviði og fetað vandlega veg klisjunnar. Auðvelt er að minnast orða höfundarins í sjónvarpinu þegar hann sagðist hafa haft hugann við sænska dægulagahefð og nefndi ABBA í því samhengi. Líklega nefnir hann ABBA í góðri von en samlíkingin er fyndin, enda kom fljótlega í ljós að lagið hafði hann fengið að láni hjá rassaskoðunarmanninum Richard Marx. Ekki verður höfundurinn sakaður um að skara fram úr í textasmíðunum heldur og einnig órafjarri ABBA þar sem framlag íslendinga í Samsöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva er samsuða úr lélegum frösum sem hefur verið raðað saman á minni tíma en það tekur að flytja lagið. Páll Óskar hafði tekið eftir því við hlustun á júróvisjónlögum hinna þjóðanna að amk. fjögur önnur lög skarta línunni "Open your heart". Þetta eru án vafa flest framlög austantjaldslandanna þar sem meginþorri almennings talar ekki ensku og kann bara "I love you", "Show me the way", "Feel your heart", "Open your heart", "Show me who you are" og viðlíka frasa. Þetta þýðir þó ekki að við fáum atkæði þessarra þjóða því þær kjósa auðvitað hverjar aðrar eins og við Íslendingar, Danir, Svíar og Norðmenn (við kjósum aldrei Finna enda hafa þeir aldrei ráðið yfir okkur).

Jæja nóg röfl, Birgitta mun standa sig vel sem staðalpoppari eins og hún hefur gert til þessa, íslendingar lenda á topp 10 (8.-10. sæti) og allir fagna dæmigerðheitunum enda rækin ástæða til að fagna því við vorum ekki rekin eins og síðast.

Birgittu til Bólivíu!

:: HauXon föstudagur, maí 23, 2003 [+] ::
...
|
Xhælir fjelagar

Át Rex-súkkulaðibita í gær. Leðjunni mundi áreiðanlega finnast Rex gott. Aldrei aftur Rís! Aldrei!

:: Valgarduz föstudagur, maí 23, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 21, 2003 ::
Chælir meistarar!

Í þessum skrifuðu orðum hefur fjélagi ykkar HauXoninn setið við dauðans dyragátt í rúman sólarhring vegna heiftarlegrar matareitrunar (eftir mat hjá tengdó). Er það grunsemd mín að fulltrúar leppríkisstjórnarinnar hafi byrlað mér eitur í þeirri von að Ríkir myndu liðast í sundur. Ekki varð þeim kápan úr því klæðinu og kem ég fullhreinsaður bæði að ofan og neðan út úr þessum hrakningum. Má áætla að samanlagðar klósettferðir undanfarins eins og hálfs sólahrings hafi komist nærri að tvöfalda samtölu klósettferða minna frá áramótum.

Vil ég þakka meðbræðrum mínum góðar stundir á skaganum um helgina. Annars virðast menn hafa skiptar skoðanir á ágæti kvöldsins en ég skemmti mér amk. konunglega og er það ekki síst því að þakka að ég hitti alla Ríka þennan sólarhring. Kristallur var stórglæsilegur með yfirvaraskegg sitt og fölnaði hýjungur minn í samanburðinum, ekki væri vitlaust hjá Kristalli að halda skegginu. Svo frétti ég að Jóhannes hefði slegið í gegn eftir að ég fór, gaman, gaman!

Svo vil ég lýsa velþóknun minni á ráðahag Valgarduzar og fjölskyldu. Nú er verkefni hans á sundurlendinu lokið og því við hæfi að Ríkir staðsetji sig ekki í mikið meira en 30 km radíus frá hvorum öðrum..

:: HauXon miðvikudagur, maí 21, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 19, 2003 ::
Xælir Fhelagar!
Það tilkynnist hér með að eftir að ég heillaðist gersamlega af Garðavelli um helgina fórum við hjúin undireins að litast um eftir fýsilegu húsnæði á nesi akranna. Og satt best að segja er það trú vor að íverustaður við Ríkra hæfi hafi fundist strax í fyrstu umferð. Það stefnir sem sé hraðbyri í að Ríkir sameinist að nýju á Stór-Akranessvæðinu, kauptilboð á íbúð og uppsagnarbréf hér á Flúðum eru currently í undirbúningi. Nánari fréttir síðar.

:: Valgarduz mánudagur, maí 19, 2003 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, maí 18, 2003 ::
Daginn Fjélagar! Dagurinn í dag hefur verið með erfiðara móti, enda er maður að jafna sig á því kúltúr sjokki sem fylgir því að hitta samferðafólk manns til til skamms tíma. Þó mátti sjá einstaklinga þar inn á milli sem áttu nærveru manns skilið. Þurfti maður að neyta töluvert magn áfengis til að komast á sama vitsmunaplan og þorri hópsins. Gafst ég upp á samkundunni upp úr 3 og hélt heim í fylgsnið. Þegar ég vaknaði voru 15 "missed calls" og 5 talskilaboð í hólfinu. Flest voru þau frá Fjélaga Kristalli sem sá sig knúinn til að tilkynna mér það, með reglulegu millibili, hversu mikill aumingi ég væri. Geri ég ráð fyrir að hann hafi verið orðinn leiður á innihaldslausum samræðum við almúgann. Nú er bara að safna kröftum í næsta árgangsmót sem er jú 2008.

:: Halogen sunnudagur, maí 18, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 16, 2003 ::
Vér hjúin hafa beðið komu yðar herra Valgarduz. Þið hjónakornin eruð aufúsugestir í húsi númer fjertíuogfjegur við Víðimelinn eitt húsa í KR hverfinu. Reyni bara að hafa för ykkar leynilega (engar limósíur) svo að óvinurinn vakni ekki. Vér munum taka á móti ykkur sem sönnum höfðingjum sæmir og hefjumst þegar handa að viða veisluföngin að okkur. Á fánastöng okkar mun blakta ósýnilegur fáni í tilefni konunglegrar heimsóknar. Svo eru hinir Ríkra, þá sérstaklega þeir sem enn eiga eftir að koma hvattir til dáða.

:: HauXon föstudagur, maí 16, 2003 [+] ::
...
|
Grémarius! Kannski við skellum okkur bara á Garðavöll á meðan aðrir Ríkir undirbúa sig fyrir hrútleiðinlegragamallabekkjarsystkinadauðansmót :-Þ

:: Valgarduz föstudagur, maí 16, 2003 [+] ::
...
|
Xælir fhelagar

Er á leiðinni á Stór-Akranessvæðið seinni partinn í dag. Spurning hvort menn vilji standa við stóru orðin og reyna að komast í golf á morgun, laugardag . Ég huxa ég taki alla vega græjurnar með mér. (Með tilliti til ókominna atburða laugardagskvöldsins læt ég mér varla detta í hug að Ríkir verði í standi til golfunar á sunnudag).

Verða HauXon og frú heima í kvöld? Það er spurning hvort maður komi ekki við í KR-hverfinu til að líta aðeins á arfaprinsessuna.

:: Valgarduz föstudagur, maí 16, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, maí 15, 2003 ::
Stelpan úr "Lola rennt" væri síðan flott Leia

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 15, 2003 [+] ::
...
|
Ekki væri heldur amalegt að fá að sjá David Hässelhoff í hlutverki Lukas Raumgänger. Ég iða í skinninu að fá að sjá þann mæta "leikara" tala sitt móðurmál.

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 15, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 14, 2003 ::
Sælir fjelagar!

Eftir fæðingu erfingjans hefur kutinn verið hvíldur frá kinnum og lít ég út eins og Robinson Cruiso nema með skalla. Inni í Melabúð hélt einhver að ég væri pólfarinn.

Af golfiðkun þá fórum vér Gamarius saman að sveifla sköftum í dag á æfingarsvæði Nesklúbbsins. Ekki bólaði á almennilegri sveiflu hjá mér fyrri en með samhjálp Ríkra að ég náði að hleypa kylfuhausnum af stokkunum. Kann ég Gmariusi kærar þakkir fyrir það. Einnig birtist íþróttaþjálfari Ríkra Sveinninn á svæðið að veitti faglega ráðgjöf og innsæi. Gmarius sannfærðist svo enn frekar um að kylfunum hann væri eitthvað ábótavant.

Gaman væri að sjá Stjernekrieg. Þó svo að Arnandur Svartinaggur sé ekki beint þýskur og að auki næstum orðinn achmerískur væri gaman að sjá hann sem Hanz Scholenschwasher. Einnig myndi ég vilja að lassýhundurinn Rex fengi hlutverk í myndaseríunni ... kannski sem Van Jodaburger þýsk ættaður gyðingahundur með yfirnáttúrulega hæfileika og sterk tengsl við "Schwartsen im der luften".

:: HauXon miðvikudagur, maí 14, 2003 [+] ::
...
|
Sælir fjelagar.

Nú í hádeginu snæddi ég á einu af betri veitingahúsum borgarinnar. Þá sannaðist það enn einu sinni hversu álíka góðan smekk við Ríkir höfum. Þar inni sat enginn annar en fjelagi Kristallur Von Strandir að snæðingi. Eftir að hafa rætt hið pólitíska ástand sem ríkir í almúgaheimi og stjórnarmyndunarviðræður leppstjórnarinnar, barst tal okkar að umræddri skeggsöfnun Ríkra. Lýsti Kristallur áhyggjum af skeggsöfnun fjelaga Halogen, sagðist hann ekki viss um að hann tæki umrædda skeggsöfnun nógu alvarlega. Mig langar að benda á yfirlýsingar Halogen varðandi umrædda skeggsöfnun hér fyrir nokkrum dægrum síðan. Nú til að eyða þessari pólitísku óvissu sem hafði myndast vegna umræddrar skeggsöfnunar ákvað ek að heimsækja Halogen í fylgsni sitt á Klapparstígnum. Þar fékk ég það endanlega staðfest frá fyrstu hendi að skeggsöfnun stæði ekki til. Þó tel ég líklegt að Halogen skipti um skoðun síðla kvölds næstkomandi föstudag og muni mæta með þessa líka glæsilegu hor- og matarleyfamottu í gleðskapinn á laugardaginn.

:: Gmaríus miðvikudagur, maí 14, 2003 [+] ::
...
|
Góð hugmynd Valgarduz Lyngdalaeus. Að minnsta kosti er ek ávalt til reiðu búinn að mæta til golfspilunar, hvar á landinu sem er, nánast hvenær sem er. Helst að smá atriði eins og leppvinna mín hjá samgöngufyrirtæki Íslands setji þar smá strik í reikningin.
Sjálfur spilaði ég í gærkveldi á Garðavelli. Þar var haldið lítið golfmót mér til heiðurs, þar sem börðust Akurnesingar og Borgnesingar. Spilið af minni hálfu var ekkert til að hrópa húrra yfir, enda ákvað ég að halda mig til hlés svo að almúgaspilararnir færu ekki allir heim í sárum.

:: Gmaríus miðvikudagur, maí 14, 2003 [+] ::
...
|
Kemst því miður ekki í golf í dag, sjáum til á morgun :-)
Fór reyndar níu holur í gærkvöldi, í alveg geysifallegri kvöldblíðu; blæjalogn og blóðrauð kvöldsól. Það jafnast ekkert á við golf við þvílíkar aðstæður. Var aleinn á vellinum, gekk prýðilega á sex holum en afleitlega á þremur.

Er hjartanlega sammála síðustu ræðumönnum um að Ríkir þurfi að hittast oftar til golfspilunar. Svo sannarlega óska ég oft nærveru ykkar jafningja minna þegar ég dunda mér einn hér á Selsvelli, en ég spila oftast einn því augljóslega eru engir aðrir en jafningjar mínir verðir samfylgdar minnar á golfvellinum.

Ræðum málin og spilum saman - því fyrr, því betra!

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 14, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 12, 2003 ::
Það er alltaf tími fyrir golf! Að minnsta kosti hef ég reynt að stunda slíkar upp á síðkastið og vonast ég til að árangur erfiðisins fari að koma í ljós. Ég er búinn að sjá það að þetta er allt kylfunum að kenna, þetta sannaðist í dag er ég notaði nýja pútterinn minn í fyrsta sinn. Aldrei púttað betur þau fáu pútt sem ég þurfti að taka. Nú er það bara næsta mál, það er að fá sér ný járn og tré.

Er ég spilaði mínar 18 holur í dag, þá fann ég fyrir mikilli nærveru Ríkra. Mismikið þó, það bar mest á X son of Hau en öllu minna fór fyrir Halogen da Ionized, hann var eitthvað fjarlægur á vellinum í dag.

Ég legg til að við spilum golf sem allra fyrst til dæmis á morgun!

Lifi íþróttabylting Ríkra, því þeirra eru hæfileikarnir og snilldin. Að eilífu. Hola í höggi.


:: Gmaríus mánudagur, maí 12, 2003 [+] ::
...
|
Nú erum við loksins farnir að tala á réttan hátt. Það skiptir engu máli hvort að það eru Framfylkingin eða Sjálfslyndiflokkurinn sem "stjórna" landinu þegar byltingin fer fram. Þar verður fólkið ekki flokkadregið, þar verða allir jafnir (og sumir jafari en aðrir). Eftir þessa æsilegu kosningabaráttu er fólkið enn sem fyrr sannfært um að leppríkisstjórnin hafi völdin og því ríkir vinnufriður fyrir Ríka sem fara raunverulega með völd.

Það verður að viðurkennast að blíðviðrið undanfarna daga hefur ollið því að ég sit löngum stundum með vallarvísinn af Garðavelli og spila golf í huganum. Stend á teig á 10. braut, tek kylfuna létt í hönd og staldra við til þess að sjá feril kúlunnar fyrir mér, tosa í hanskann, sveifla mjúklega aftur og boltinn flýgur í fallegum sveig á svæðið milli tjarnarinnar og bönkeranna hægra megin. Frábært högg! Aðeins gott chipp á milli mín og holunnar. Eitt pútt ... bördí! Ætli ég nái erni á næstu??? hehehe

Þetta er auðvitað áminning um það að Ríkir þurfa að hittast oftar til að spila golf. Það er bara ekki nóg að spila einu sinni á ári í slyddu á hinum fagra Selsvelli á Flúðum. Gaman væri að halda undirbúningsmót um mitt sumarið ef Gmarius (og við hinir) gæti fundið tíma.

:: HauXon mánudagur, maí 12, 2003 [+] ::
...
|
Ég held það hafi nú endanlega sannast í þessum kosningum að þetta kerfi með tvo vinstriflokka gengur bara ekki upp. Sjáið bara útreiðina sem Vinstri Grænir fá í kosningunum, búnir að vera í stjórnarandstöðu frá öndverðu og tapa samt þingmanni. Útreiðin á þeim er einna verst í kjördæmi formannsins, þar sem Framsókn vinnur stórsigur (hmmmm af hverju skyldi það nú vera???:-)

Mér finnst að Ríkir ættu að ákveða hér og nú að skipuleggja leppstjórnmálin þannig að í næstu kosningum höfum við tvo hægriflokka, Framsókn sterka á miðjunni og síðan sameinum við vinstrimenn endanlega í Samfylkinguna. Leggjum niður Vinstri-Græna, enda fer þar ekkert fram nema fokk og fávitaháttur. Síðan finnst mér að Ríkir eigi að ákveða að svona hálfvitaframboð eins og "Nýtt afl" (sem hefði átt að heita "Gamalt drasl") verði héðan af bönnuð. Þetta er svo utterly tilgangslaust og heimskulegt að það tekur engu tali.

Að lokum vil ég bara segja að það var aldrei meining mín að mitt atkvæði kæmi í veg fyrir þingsetu Ingibjargar S. Það lýsir því bara hvað kosningalöggjöfin er undarleg að atkvæði greidd á Suðurlandi skuli valda slíkum sveiflum í Reykjavík. Í menningarbyltingu Ríkra verður öll vitleysa af þessu tagi lögð niður. Reyndar verða kosningar alfarið lagðar niður eftir að Ríkir heimta völd sín.

:: Valgarduz mánudagur, maí 12, 2003 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, maí 11, 2003 ::
Ég myndi nú frekar vilja sjá fjóra flokka bítast um völdin. Mér finnst prýðilegt að hægri menn séu dreifðir niður í Frjalslynda og Sjálfstæðisflokk. Það sem er einnig gott við það er að öfgamennirnir eru innan vébanda Sjálfstæðisflokksins þannig að Frjálslyndir einangrast ekki sem öfga hægrimenn. Annars vil ég óska Valgardusi til hamingju með góðan varnarsigur og þá staðreynd að það er Framsóknarflokkurinn sem heldur leppríkisstjórninni við völd en ekki íhaldið. Einnig er ég sjálfur voða glaður með árangur Samfylkingarinnar og stoltur af árangrinum. Svo verður Samfylkingin að festa sig í sessi á komandi kjörtímabili, senda gamla hunda í úreldingu og fá ferskt og kraftmikið fólk í framvarðarsveitina. Það var samt leitt að það var Valgardus sjálfur sem ýtti Ingibjörgu út af þingi nú í morgunsárið :-)

:: HauXon sunnudagur, maí 11, 2003 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 09, 2003 ::
Ég verð reyndar að segja að ég kann ágætlega að meta tillögu Hrannars að þriggja flokka kerfi á Íslandi. Ég bendi á að þær ríma ágætlega við hugmyndir Jónasar frá Hriflu frá 1916. Jónas sá fyrir sér þriggja flokka kerfi með Íhaldsflokknum, Framsóknarflokknum og Alþýðuflokknum (tók reyndar sjálfur þátt í stofnun tveggja þeirra síðarnefndu). Þótt tillaga HauXonar hljóði upp á Sjálfstæðisflokk, Samfylkingu og Vinstri-græna þá er hún í grunninn sú sama, hér yrðu öflugir hægri og vinstri flokkar og einn miðjuflokkur á milli. Hvað sem segja má annars um Hriflu-Jónas, þá var hann afar framsýnn og skynsamur í þessum efnum.

Ef Samfylkingunni tækist að losa sig við "hörðu vinstrisinnuðu femínistana og fýlupúkana" og yrði að raunverulegum miðjuflokki væri hún strax farin að ríma betur við mínar skoðanir. Þegar allt kemur til alls þá hafa jú báðir þessir flokkar fengið að njóta atkvæða minna gegnum tíðina, Samfylking og Framsókn :-)

Ekki sagði ég að Framsókn væri einhver sér bændaflokkur. Því fer fjarri og í því sambandi kannski fróðlegt að benda á að stór hluti fylgis Framsóknar kemur frá aldurshópnum 18-24 ára. Framsókn er fyrst og fremst hófsamur miðjuflokkur, af svipuðu tagi og Liberalið breska, sem alltaf er í minnihluta á milli Labour og Conservative. Hins vegar er það staðreynd að vinstristefna höfðar einhvern veginn ekki til sveitafólks og búandi í landbúnaðarhéraði verð ég að segja að mér finnast vinstrimenn, hvort sem það eru Samfylking eða Vinstri-grænir, ekki gera mikið í því að reyna að sækja fylgi upp til sveita. Kannski vita þeir að það þýðir ekkert því þeir hafi ekki sterkan málstað fram að færa gagnvart þessum hópi.

:: Valgarduz föstudagur, maí 09, 2003 [+] ::
...
|
Sjaldan hafa jafn gáfulegar samræður átt sér stað og nú á Ríkrablogginu enda rökfestan og sannfæringarkrafturinn hvergi meiri en hjá Ríkum. Sæi alýðan spjall okkar yrðu kosningarnar ekki einu sinni spennandi :-)

Ég er ósammála því að bændur þurfi að hafa einhvern sér flokk, frekar en bifreiðastjórar eða pípulagningarmenn. Eðlilegast er að bændur taki þátt í flokkstarfi þeirra flokka sem samræmist þeirra lífssýn og hafi áhrif á stefnu flokkanna innan frá. Svo er það helber misskilningur að Framsóknarflokkurinn sé einhver bændaflokkur. Bændur hafa vissulega sterkari ítök í Framsóknarflokknum en mörgum öðrum flokkum en manni sýnist á gjörðum flokksins í leppríkisstjórninni að það séu sægreifar og valdagráðugir menn úr viðskiptalífinu sem ráða þar meiru. Mér dettur ekkert stefnumál Framsóknarflokksins í hug þegar ég hugsa til bænda.. það er kannski helst myndin af Guðna Ágústssyni í sleik við belju og hugmyndir hanns um að setja 50 millur í að kynna íslenska hestinn fyrir þýska auðkýfinga sem gætu flokkast í þá áttina. Ef þetta er nóg til þess að fá bændur til að kjósa sig þá eru það ódýr atkvæði.

Svo verð ég nú að segja það að ég hafði illar bifur á Guðmundi Árna fyrir kosningabaráttuna en finnst hann hafa unnið á. Annað varðandi hljóðskrána sem þú sendir okkur í morgun. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir býr sem betur fer yfir þeim eiginleikum að geta sest niður og hugsað málin áskilið sér rétt til að breyta um skoðum ef umhugsunin ber það af sér. Það lélegasta í fari nokkurs stjórnmálamanns er að hafa þannig lundarfar að geta ekki skipt um skoðun jafnvel þó að viðkomandi komist af því að hann hafi lýst einhverju yfir sem hann veit að var rangt. Ingibjörg Sólrún skipti um skoðun. Ekki verður t.d. sagt um Siv Friðleifsdóttur að hún búi yfir þessum eiginleikum, þar sem hún gerði þau mistök að taka afstöðu til virkjanaframkvæmdana áður en hún fékk gögn til að úrskurða eftir og þurfti að víkja, hagar hún sér eins og blaðafulltrúi hjá Landsvirkjun. Þeir sem eru mest ósáttir við ákvörðun Ingibjargar eru þeir sem kusu hana ekki í borgarstjórnarkosningunum, Sjálfstæðismenn. Sjálfstæðismenn virðast hafa haldið að borgarstjórnarkosningarnar hafi snúist um það að meirihluti Reykvíkinga hafi ekki verið aðkjósa R-listann til valda, heldur Ingibjörgu af þingi. Annars gæti alveg farið svo að Solla verði hvorki borgarstjórni né forsætisráðherra og þá geta Sjallarnir tekið gleði sína á ný.

:: HauXon föstudagur, maí 09, 2003 [+] ::
...
|
Xæru fhelagar.
Það er hreint magnað að sjá hve þroskuð og háþróuð hugsun Ríkra hf. er ávallt á örlagastundu. Þótt tekist sé á og menn fari um víðan völl í málefnaumræðu kemur alltaf að því að Ríkir finna sinn eina sameiginlega hljómgrunn, markaðan af skynsemi og einstaklega víðsýnri heimssýn sem einungis snillingar hafa til að bera.

Eins og HauXon réttilega bendir á þarf maður ekki að gleypa við öllum gjörðum flokks síns, né heldur þarf maður endilega að vera ánægður með alla fulltrúa síns flokks. Kristallur minnist hér neðar á félagsmálaráðherra, en þegar sá maður tók við embætti á sínum tíma þótti mér Framsóknarflokkurinn ganga fram hjá mörgum hæfum manninum til að hygla einhverjum gömlum jálki sem ekkert hafði í ráðherrastól að gera. Þótti mér það því gæfuspor þegar kjördæmisþing NV-frammara tróð kallinum í ruslatunnuna og valdi ungan, framsýnan mann til forystu. Hins vegar þætti mér gaman að heyra hvernig Kristalli líst á að fá Jóhönnu Sig sem fjármálaráðherra, hvað þá að Guðmundur Árni fái ráðherrastól (Guð hjálpi oss).

Ég las fyrir skömmu ævisögu hins gamla vinstrimanns og þingmanns Alþýðubandalagsins, Guðmundar Jaka. Úr þeirri bók mátti lesa að þrjú skammaryrði voru verst í huga Gvendar: Arðræningjar, kúgarar og bændur. Enn þykir mér eima eftir af þessu viðhorfi vinstrimanna gagnvart bændum og nægir að nefna tengdamóður mína og mág í því sambandi. Hvað sem hver segir þá ríkir enn gagnkvæm tortryggni þarna á milli sem erfitt virðist vera að uppræta. Á sama hátt má nefna, að hér í því sveitasamfélagi sem ég bý í virðast vinstrimenn ekki einu sinni ætla að reyna að sækja fylgi upp til sveita. Samfylkingin sendir hingað menn úr 7. og 8. sætum framboðsins á sama tíma og Framsóknarmenn úr fimm efstu sætum listans hafa farið um öll héruð. Lúlli er fastur úti í Eyjum og Magga Frímanns virðist ekki kannast við að hér á Suðurlandi búi fólk utan þéttbýlisstaðanna.

Það hlýtur því að vera skiljanlegt að ég sem á mínar rætur meðal bænda og bý í bændasamfélagi skuli leitast við að finna skynsama miðjustefnu í stjórnmálum og eins og er þykir mér Framsókn besti kosturinn í þeirri viðleitni, þótt fjarri sé að þar sé að finna svörin við öllum heimsins vanda. Ekki fer ég, fjandinn hafi það, að kjósa íhaldið!!

:: Valgarduz föstudagur, maí 09, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, maí 08, 2003 ::
Gaman að sjá hér hvernig Ríkir geta lifað sig inn í stefnumál leppstjórnmálaflokkana. Við Kristallur getum verið sammála um að þar sem ekki eru líkur á því Framsóknarflokkurinn leggi upp laupana sé afar gott að mikilmenni sem Valgarduz frændi vor skuli ljá kröftum sínum það hlutverk að reyna að leiða flokkinn af villigötum. Eins og Framsóknarflokkurinn starfar nú er hann sem angi af Sjálfstæðisflokknum og sést það vel á að Sjálfstæðisflokkurinn myndi frekar kjósa að starfa áfram með Framsókn en að vinna með Frjálslyndaflokknum sem er yfilýstur hægriflokkur.

Það sem ég mynd helst vilja að gerðist er að Framsóknarflokkurinn myndi leysast upp, hægrisleikjurnar gætu þá gengið í Sjálfstæðisflokkinn og skynsemisþenkjandi mennirnir eins og Valli til liðs við stóran jafnaðarmannaflokk á evrópska vísu (sem Samfylkingin átti að verða). Það sem þyrfti að gerast er að hörðu vinstrisinnuðu femínistarnir og fýlupúkarnir í Samfylkingunni gengu til liðs við Vinstri græna. Ég er orðinn svakalegaþreyttur á að t.d. Jóhanna Sig. komi reglulega fram sem málsvari minna málefna opinberlega. Hún er einstrendingslegur þvermóðskupúki (með mikla réttlætiskennd) og gefur eiginlega þá mynd að jafnaðarmenn séu bitrir einstaklingar sem hafi farið illa út úr lífinu og séu að farast úr fátækt. Barátta gegn fátækt á Íslandi er verðugt og göfugt baráttumál en ég er ekki viss um Jóhanna viti hvernig á að leysa vandann.. við vitum öll að hún er fullfær um að benda á hann. Einnig finnst mér Ingibjörg Sólrún ekki endilega vera það sem ég myndi kalla dæmigerður frjálslyndur jafnaðarmaður. Hún er akkúrat það sem hún gagnrýnir Davíð Oddson mest fyrir að vera... hrokafullur einræðisstjórnmálamaður. Amk. hefur maður lítið séð hann Össur í auglýsingunum þrátt fyrir að hann eigi að heita formaður flokksins.

Þetta þýðir auðvitað ekki að ég ætli ekki að kjósa Samfylkinguna, heldur að Samfylkingin er enn Alþýðuflokkur/Alþýðubandalag/Kvennalistinn og frambjóðendurnir í þessum kosningum eru bara gömlu lummurnar með sömu áherslurnar og þær væru með í gömlu flokkunum sínum. Ég hefði frekar vilja sjá Össur (sem er reyndar gamall í hettunni), Ásgeir Friðgeirs og jafnvel Jakob Frímann eða Dag sem tákn nútímajafnaðarmannsins sem er félagslegasinnaður en veit að nútíma hagkerfið er og verður markaðhagkerfi. Þegar þetta verður reyndin er líklegra að skynsemismenn úr Framsókninni gangi til liðs við skoðanabræður sína í Samfylkingunni og skilji hálfgildings Sjálfstæðishjásvæfurnar eftir hjá Sjálstæðisflokknum.

Skál félagar !!!

:: HauXon fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Ég ætla að biðja Félaga Kristall að hemja skap sitt og brigsla mér ekki um að vera sá vondi maður sem hann lýsir í síðasta bréfi sínu. Frændi minn af Ströndum norðan hlýtur að þekkja mig betur en svo. Vil ég taka Kristalli vara við því að horfa á heiminn einungis í svörtu og hvítu, við ættum held ég allir að taka okkur félaga HauXon til fyrirmyndar sem að mínu mati mælir spaklega og af hlutlausu innsæi. Í þessu eru ekki til neinir alvondir menn frekar en algóðir, menn greinir einfaldlega á um leiðir til að hver og einn geti fengið að reyna sitt besta á hverjum tíma.

Kristallur ber á mig margar vondar sakir og sé ég mér ekki annað fært en að bregðast við þeim ákúrum, að sjálfsögðu á siðaðan og yfirvegaðan hátt eins og Ríkum sæmir.

Ef flokka á mig sem Framsóknarmann, þá telst ég í það minnsta ungur Framsóknarmaður, en þeirra samtök fordæmdu opinberlega árásina á Írak og sérstaklega hvernig Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var sniðgengið í því máli. Innan flokks hafa ungir Framsóknarmenn einnig gagnrýnt utanríkisráðherra og formann flokksins harðlega fyrir að veita ekki harðari mótstöðu þegar þvert á vilja hans og annarra flokksmanna var gengið af forsætisráðherra og fleiri yfirgangsseggjum.

Stóryrtar og órökstuddar yfirlýsingar eins og þær að velferðarkerfinu sé að blæða út eru Kristalli ekki til sóma, þetta er hræðsluáróður sem ekki á við nein rök að styðjast. Það er dýrt og erfitt að reka gott velferðarkerfi, en íslenska velferðarkerfið er þó enn eitt það besta í heimi. Fáir hafa þó sýnt meiri dugnað og ábyrgð í þessum málum en heilbrigðisráðherrar Framsóknarflokksins og tel ég kominn tíma til að þau fái að njóta sannmælis fyrir að hafa tekið til eftir kratana í þessu erfiðasta ráðuneyti ríkisstjórnarinnar.

Hins vegar er ég á því að öflug utanríkisstefna eigi að snúast um það að byggja upp pólitísk og viðskiptaleg sambönd víða um heim. Fjármunir utanríkisþjónustunnar ættu frekar að fara í slík, raunveruleg verðmæti heldur en gólfteppi og listmuni í einhverjum slottum um allan heim. Eins á að ráða í sendiherrastörf menn með þekkingu, reynslu og menntun í alþjóðaviðskiptum en ekki dauðþreytta, útbrunna pólitíkusa eins og Jón Baldvin, Svavar Gests og Þorstein Pálsson (sá síðastnefndi hefur reyndar alltaf verið vanhæfur í öllu sem hann hefur tekið sér fyrir hendur).

Hvað Falun-Gong varðar, þá var ég sjálfur á þeirri skoðun að úr því þessi kínverski fjöldamorðingi var staddur á landinu hefðu Íslendingar gert best í því að handtaka manninn og framselja hann Falun-Gong liðum til dóms og refsingar. Sjálfur hef ég mikinn áhuga á að kynna mér Tai-Chi leikfimi til styrkingar líkamsgreind minni og sjálfsþekkingargreind.

Það finnst engum í lagi að húseignir fólks í sjávarbyggðunum standi verðlausar, Kristallur þarf ekki að halda því fram að það sé vilji nokkurs manns að svo sé. Hins vegar skil ég ekki að vinur minn Kristallur skuli taka gagnrýnislaust undir fyrningartillögur Samfylkingarinnar. Þær tillögur bæta ekki úr ranglæti núverandi kerfis, þær sjá bara til þess að ranglætið bitni á öðrum en það gerir nú.

Ekki þarf Kristallur heldur að gera mér upp þá skoðun að það hlakki í mér yfir atvinnuleysi fólks. Slíkt fól er ég ekki. Né heldur er ég, frekar en þorri landsmanna, ánægður með starfshætti Landsvirkjunar sem farið hefur út fyrir öll velsæmismörk í yfirgangi sínum og óbilgirni. Ég held að Salómonsdómur Jóns Kristjánssonar hafi fallið flestum vel í geð, og mín skoðun er að sá dómur eigi að halda undanbragðalaust. Hins vegar tel ég að höfuðstöðvar Landsvirkjunar eigi vel heima á sprengjulista Ríkra, og helst að látið verði til skarar skríða þegar Frikki Sóph er staddur í húsinu.

Að lokum vil ég taka fram að ég er ekki flokksbróðir forsætisráðherra, né er ég meðal hans aðdáenda. Ummæli hans um þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu lýsa aðeins hans brenglaða hugarástandi og dæma sig sjálf. Ég vil fyrir alla muni losna við þennan mann úr valdamesta embætti landsins.

Að þessu sögðu langar mig að leggja á það áherslu, að ég tel mig hafa rétt til minna sjálfstæðu skoðana óháð flokksböndum eða öðrum félagsaðstæðum. Þótt ég telji einn flokk vera besta valkostinn í komandi kosningum þýðir það ekki að ég sé í einu og öllu sammála forystu þess flokks eða öllum hans gjörðum. Vil ég einnig hvetja vin minn Kristall til að veita sér þann munað að hugsa sig tvisvar um áður en hann tekur upp stefnu Samfylkingarinnar og gerir hana óbreytta að sínum skoðunum. Slíkt hugsunarleysi kann ekki góðri lukku að stýra. Einnig tel ég mig hafa allan rétt til að vera ósammála Kristalli og vil gjarnan rökræða við hann á siðaðan og eðlilegan hátt. Hins vegar frábýð ég mér því að vera brigslað um að vera slíkur óþverri af manni eins og lesa mátti úr síðasta bréfi Kristalls og hvet ég vin minn til að temja sér ögn meiri víðsýni og fordómaleysi í hugsun.

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Leitt að heyra með Blixa og takk Valli fyrir þessa fallegu vísu. Aðeins varðandi kvótaframsal og veðsetningar. Ég er enginn sérfræðingur í sjávarátvegsmálum og hef ekki lesið mig til um þessa svokölluðu fyrningarleið Samfylkingarinnar. En það eru nokkur grundvallar atriði sem eru mér ofarlega í huga varðandi hvernig kerfið er statt nú. Ég skil t.d. ekki hvernig framsóknarmenn geta tekið því sem árás á sig að talað sem um að laga kerfið til því að það sé gallað. Flest allir landsmenn eru mjög sáttir við það að tekist hefur að stjórna fiskveiðum hér betur en hjá nánast öllum öðrum fiskveiðiþjóðum. Það hefur að miklu leiti orðið fyrir tilstylli og verknað Halldórs Ásgrímssonar og hann vann mikið afrek þegar hann innleiddi þetta kerfi. Það sem hefur hins vegar gerst hin seinni ár er að útvegsmennirnir sjálfir hafa ákveðið, án samráðs við ráðamenn að fara að líta á úthlutaðan kvóta sem sína eign. Viðbrögð sitjandi ríkisstjórna hafa svo verið á þann veg að gangast við niðurstöðum dómstóla í kærumálum og þannig fer kvótabraskið af stað. Sitjandi ríkisstjórnir hefðu getað brugðist strax við með lagabreytingum. Glufur í kerfinu ollu því að útvegsmenn gátu slegið eign sinni á almannaeigur. Það sem mér finnst skipta máli í þessu öllu saman er koma í veg fyrir að þetta verði áfram hægt. Þeir sem hafa tekið lán og veðsett fyrir kvótann fá áfram að veiða hann, þeir geta bara ekki selt hann. Mesta verðmæti í kvóta hlýtur að vera rétturinn til þess að veiða hann sem verður áfram, auk þess sem viðkomandi hljóta að hafa verið meðvitaðir um að það væri verið á dansa á fínni línu. Ég held að ástæðan fyrir því að Framsóknarflokkurinn berst fyrir því að kerfið verði áfram óbreytt er að nokkrir útgerðarmenn hafa sterk ítök í flokknum, þar á meðal Halldór sjálfur sem varð óvart milljarðamæringur við þróun undanfarinna ára. Kvótakerfi er gott en það þarf að bregðast við gífurlegu óréttlæti sem felst í því að einstæklingar geti selt eignir almennings fyrir milljarða á milljarða ofan. Og guð forði okkur frá sóknardaga kerfi úfff!!!. Meira seinna.

:: HauXon fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Slæmar fréttir af slæmum fræjum:
http://www.mute.com/nickcave/bargeld.html

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Leiðrétting: Atvinnuleysi fór upp í 5% í lok stjórnartíðar krata og sjalla. Síðan Framsókn komst í stjórn 1995 hefur það hæst farið upp í 3,3% og hafa þeir sýnt meiri viðleitni og ábyrgð í að taka á þeim málum en kratarnir gerður nokkurn tíma á sínum tíma. Kosningarnar nú snúast bara um eitt. Samfylkingarmenn og aðrir glaumgosar stjórnmálanna vilja nú ólmir komast að kjötkötlunum sem ríkisstjórnin hefur byggt upp síðustu árin. Ég spyr bara; hverjir eiga að fá að spila úr því sem tekið hefur átta ár að byggja upp, þeir sem byggðu upp góða stöðu þjóðarbúsins eða þeir sem hafa eytt átta árum í að halda kjafti inni á þingi?

Í alvöru talað, eini stjórnarandstöðuþingmaðurinn sem hefur sýnt einhverja viðleitni í að rífa kjaft á gáfulegan hátt er Steingrímur rauði. Aðrir hafa bara þagað þunnu hljóði meira og minna í átta ár eða bara bullað einhverja dómadagsvitleysu sem ekkert mark er á takandi (sbr. bréf Kristalls Strandamanns hér að neðan)

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Hins vegar er engin ástæða til bölsýni yfir veraldlegum málum meðan Ríkra nýtur við og ekki síst meðan þeir eignast svo glæsileg afkvæmi sem raun ber vitni. Full ástæða er til að gerast örlítið vemmilegur og yrkja Welcome-vísu hinni nýfæddu dóttur HauXonar og Aldarínu:

Bestu óskir við berum þér
barnið ljúfa, káta
Lifðu vel og leiktu þér
litla, fagra hnáta.

Hjartanlegar hamingjuóskir frá Flúðasveppum

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Tómas Ingi Olrich er hins vegar slíkt fífl, að þegar hann var í námi í Frakklandi kringum 1968 og stúdentar fjölmenntu út á götur til að mótmæla og óeirðast, þá sat þessi hortittur einn inni í fyrirlestrarsal í háskólanum sínum og heimtaði kennslu!!!!!
Þetta hef ég eftir áreiðanlegum heimildum, og segir meira en mörg orð um manngerðina.

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
Úr því við erum farnir að ræða um pirrandi pólitík nú í kosningabaráttunni, þá get ég ekki orða bundist mikið lengur yfir málflutningi Samfylkingarinnar í ákveðnu máli, þ.e. kvótamálinu.
Samfylkingarmenn fara mikinn og hrópa um ranglætið sem fólgið er í “vonda kvótakerfinu” sem “vondu Framsóknarmennirnir” komu á. Til að átta sig betur á raunveruleikanum er fróðlegt að velta fyrir sér sögu kvótakerfisins frá upphafi þess árið 1983. Það ár settist Halldór Ásgrímsson í stól sjávarútvegsráðherra, einfaldlega vegna þess að hann var eini maðurinn sem treysti sér í það mikla verk að taka þar til eftir langa setu kratans Kjartans Jóhannssonar. Það var þá ljóst, að nauðsynlegt var að takmarka fiskveiðarnar ef ekki átti að leggja miðin í algera auðn, eins og til dæmis hefur orðið raunin við Nýfundnaland. Halldór Ásgrímsson kom þá á kvótakerfinu, kvótanum var úthlutað til þeirra sem voru starfandi í greininni, byggt á veiðireynslu næstu þriggja ára á undan. Það kerfi gerði ráð fyrir því að sá sem fékk kvótann varð að veiða fiskinn, undantekningalaust.

Það var síðan í stjórnartíð Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks, sem frjálst framsal aflaheimilda var innleitt. Það er þetta frjálsa framsal aflaheimilda sem hefur gert mönnum kleift að braska með óveiddan fiskinn í sjónum og hefur skapað það óréttlæti sem Samfylkingin nú kveinar undan. Það er því alveg ljóst, að þegar kratar gagnrýna kvótakerfið, þá eru þeir að gagnrýna það kerfi sem þeir komu sjálfir á undir merkjum Alþýðuflokksins. Nú fela þeir sig hins vegar undir merkjum Samfylkingarinnar og þykjast ekki eiga neina fortíð.

Samfylkingin talar nú um fyrningarleið, sem felst í því að taka kvótann smátt og smátt af núverandi handhöfum og selja á opnum markaði. Það þarf ekki að hugsa sig lengi um til að sjá að þeir sem þegar hafa veðsett eignir sínar og eytt stórfé til kvótakaupa hafa ekki efni á að kaupa sama kvótann aftur á opnum markaði. Ranglæti kvótakerfisins mun því ekki hverfa, heldur einungis bitna á öðrum á annan og verri hátt en það gerir í dag. Það má því segja um Samfylkinguna að vont sé hennar ranglæti en verra hennar réttlæti.

Og hana nú!

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 08, 2003 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 07, 2003 ::
Þar sem styttist í kosningarnar langar mig aðeins að tæpa á máli sem fer afskaplega í taugarnar á mér. Nú hafa Vinstri grænir látið gera áætlanir um hversu miklu flokkarnir hafa eytt í kosningabaráttuna, sem er í sjálfu sér ágætt og fróðlegt mál. Kemur í ljós að fjárausturinn virðist nokkurnveginn í samræmi við stærð flokkana nema að Framsóknarflokkurinn sá sig greinilega tilneyddan til þess að auglýsa meira hlutfallslega (sem er skiljanlegt). Menn kunna þá að spyrja.... "Hvað er svona pirrandi??" Jú, það helvítið hann Tómas Ingi Olrich sem hefur ákveðið að eyða 1.160 milljónum í kosningabaráttu sjálfstæðisflokksins í eigin kjördæmi af almannfé, er virðist í þeim einum tilgangi að tryggja sæti sitt á Alþingi. Samkvæmt fréttablaðinu hefur þetta erkifífl skrifað undir samninga um menningarhús ofl. fyrir um 1.7 miljarða undanfarnar sjö vikur, þar af fyrir tæpan 1.2 milljarð í sínu kjördæmi. 100 þúsund kallinn sem áætlað var að Nýtt afl hafi notað í kosningabaráttuna verður sem rykorn í sementverksmiðjunni til samanburðar. Þetta er hneisa! Ég legg til að Sjálfstæðisflokkurinn verði látinn borga þetta nýjasta útspil sitt í kosningabaráttunni. Ekkert hefur reytt mig jafn mikið til reiði og þetta heimskulega útspil menntamálaráðherra í kosningabaráttunni til þessa. Væri ekki vit í að setja lög þar sem komið verður í veg fyrir svona vitleysu?? Urrrrr!!!!

:: HauXon miðvikudagur, maí 07, 2003 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 05, 2003 ::
Sælir kammeratar! Nú hefur sú gleðistund upp runnið að afkvæmum guðanna hefur fjölgað og veldið styrkir stoðir sýnar um leið. Samkvæmt nákvæmri áætlun um að jafna kynjahlutföllin meðal afkvæma okkar voru rekkjubrögðin þaulskipulögð með það að markmiði. Ég vil fyri hönd fjölskyldunnar þakka þann hlýhug sem okkur hefur verið veittur nú fyrstu dagana og mun hann verða okkur gott veganesti í að ala upp snilling og ekkert annað! Gmarius er enn unglamb að aldri (enda yngstur Ríkra), hann þarf sinn tíma til þess að hlaupa af sér hornin. Ég er ekki í nokkrum vafa að Gmarius fylgir nákvæmlega afkvæmaáætlun Ríkra hf. sem er svo leynileg að enginn okkar veit neitt um plön hinna. Ég hef á tilfinningunni að Hologeninn eigi eftir að finna sér úrvalshýsil á árinu enda leðurklætt glæsimenni þar á ferð. Kær kveðja! Hrannar, Alda og prinsessan.

:: HauXon mánudagur, maí 05, 2003 [+] ::
...
|
Sælir Félagar.
Ekki er annað hægt að taka undir orð félaga Halogen da Ionized vegna fölgunar erfingja Ríkidæmisins, mikil gróska virðist vera í þeim málum hjá hluta félagsmanna.
Þó verð ég að segja að síðari hluti yfirlýsingar félaga Halogen da Ionized þykir mér marka ákveðin tímamót! Ég skil hana sem svo að hér sé um ákveðna stefnubreytingu að ræða félaga Halogen da Ionized, eða kannski frekar má segja að félagi Halogen da Ionized sé að skerpa kúrsinn í þessum málum. Ég vona að leit hans að verðugum hýsil fyrir hið gullna erðaefni beri árangur sem allra fyrst.

:: Gmaríus mánudagur, maí 05, 2003 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, maí 04, 2003 ::
Góðan daginn Félagar!
Dagurinn í dag er merkisdagur í sögu Ríkra. Því í dag varð spússa X son of Hau léttari. Í tilefni af því er öllum almenningi skylt að fagna fæðingu krónprinsessunar og afkvæmi frelsarans. Eins og alheimur veit hefur kynbótastefna Ríkra leitt af sér 2 erfingja það sem af er árinu . Vissulega verður að líta á gjörning þann er hér er viðhafður sem áskorun til þeirra Ríkra er ekki hafa afritað erfðaefni sitt. Sjálfur tek ég þetta til mín og hef hafið leitina að verðugum hýsil. Lifi Ríkir því þeirra er mátturinn.

:: Halogen sunnudagur, maí 04, 2003 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, maí 01, 2003 ::
Kveldið jafningjar! Þá er eins og Félagi Gmaríus minntist á, dagur lýðsins brátt á enda. Tek ég undir þá tillögu að lagðir verði niður áður nefndir frídagar allmúgans og nýjir teknir upp. Mælist ég einnig til að Hallvarðsmessa sem að öllu jöfnu er 15. mai verði flutt á 19. ágúst og þar með sameinuð einum þeirra daga er hlotið hafa samheitið "Dagar Hinna Heilögu Manna". Í framhaldinu þurfum við að skoða breytingar á staðarnöfnum,götunöfnum oþh. Einnig endurskoða tímatalið. Mælist ég til að viðmiðunartími verði hér eftir kallaður "Rich inc. meantime". Fæðingastaður frelsarans í Jerúsalem verði lagður niður og musteri byggð við fæðingastaði hinna einu sönnu frelsara. Upp verði sett gjaldskýli við fæðingastaðina og tíund árstekna rukkuð af þeim er koma og skoða. Almúganum verði skilt að mæta á fæðingastað hvers og eins í það minnsta einu sinni á ári. Sé ég ágæta tekjulind í því fyrirkomulagi og rennur aurinn óskiptur til æstráðenda. Annars sýnist mér þetta vera efni í næsta aðalfund.

:: Halogen fimmtudagur, maí 01, 2003 [+] ::
...
|
Jæja, þá er brátt af baki enn einn gagnslausi almúgafrídagurinn! 1. maí, verkalýðsfrídagurinn. Að hugsa sér, að almúgamenn skuli fá frí af jafn líktifjörlegu tilefni og því að verið sé að halda upp á dag hinna vinnandi stétta. Sjálfur bjóst ég við því að almúgamenn myndu ganga fylktu liði framhjá höfuðstöðvum mínum, en heigulsháttur þeirra var þess valdandi að þeir fóru aðra óhefðbundna leið og gengu um götu Njarðar. Ég tel líklegt að megin ástæða þeirrar ákvörðunar hafi verið það hversu Ríkir hf hafa verið áberandi á Netinu upp á síðkastið. Óttinn við vald Ríkra er byrjaður að segja til sín hjá hinum lægri stéttum. Sjálfur var ég þó við öllu búinn, hefði lýðurinn gengið framhjá höfuðstöðvunum. Ég hefði að minnsta kosti notað tækifærið til að skvetta úr næturgagni mínu yfir fjöldann þegar hann hefði gengið framhjá.
Talandi um frídaga hérna er listi yfir þá frídaga sem ég legg til að Ríkir afnemi við yfirtökuna: Nýársdagur, Pálmasunnudagur, Skírdagur, Föstudagurinn langi, Páskadagur, Annar í páskum, Sumardagurinn fyrsti, Verkalýðsdagurinn, Uppstigningadagur, Sjómannadagurinn, Hvítasunnudagur, Annar í hvítasunnu, Lýðveldisdagurinn, Jónsmessa, Frídagur verslunarmanna, Fullveldisdagurinn, Þorláksmessa, Aðfangadagur jóla, Jóladagur, Annar í jólum, Gamlársdagur og Sunnudagur.
Einu frídagarnir sem gefnir verða, eru eftirfarandi: 21. maí, 8. ágúst, 19. ágúst, 14. september og 28. september. Þá mætti alla nefna einu nafni,"Dagar Hinna Heilögu Manna". Einnig verða frídagar þegar við ákveðum að það séu frídagar. Það er þó lykilatriði í þessu öllu að almúginn vinni sem flesta daga til að auður, völd, vegsemd og virðing Ríkra megi vaxa sem hraðast.

Lifi menningarbylting Ríkra, því þeirra er Ríkið mátturinn og dýrðin!!!

:: Gmaríus fimmtudagur, maí 01, 2003 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?