:: welcome to Ríkir hf :: bloghome | Viltu vera memm? ::
Vikulistinn (halogen)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (gmarius)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (hauxon)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (kristallur)
- - - - - - - - - -
Vikulistinn (Valgarduz)
- - - - - - - - - -
[::..Eldra stuff..::]

  :: sunnudagur, maí 30, 2004 ::

Vona að harðsperrurnar séu að hverfa úr hálsi Hauxon. Já mikið voru nú þetta skemmtilegir tónleikar. Hins vegar var ég að lesa Moggan áðan og sá að einhver tónlistarskríbentinn var með gagnrýni á tónleikana (að vísu þá sem voru á þriðjudaginn). Hann gaf þeim * af ***** mögulegum og fann hann þeim allt til foráttu. Ég tel að það sé alveg nauðsynlegt að fultrúi Ríkra á þessum tónleikum gefi komment á þessi skrif. Ég var í það minnsta fljótur að bæta þessum skríbent á Eyðingalistann auk þess sem ég skrifaði Moggann enn einu sinni á hann.

Hins vegar verð ég að fagna því að einn "Framsóknarsjálfstæðismaðurinn" virðist vera búinn að átta sig á því að þeir eru algjörir aular og líklega sé réttast á henda þeim út á götu svo að þeir geti hugsað ráð sitt. Um leið lagar mig að fagna því að lepp-þingið er komið í sumarfrí svo að þingmenn geti snúið heim í hérað til að sinna búreksti sínum, huga að slætti og réttum áður en þeim mæta aftur í vinnuna.

:: Gmaríus sunnudagur, maí 30, 2004 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 28, 2004 ::
Ég er með geðveikar harðsperrur í hálsinum núna 2 dögum síðar.

Hey!

:: HauXon föstudagur, maí 28, 2004 [+] ::
...
|
Þessa dagana óma Pixies lög stanslaust í hausnum á mér - koma eitt af öðru, stjórnlaust og án áreynslu - fljóta bara í gegnum hugann og óma í undirmeðvitundinni. Ég er ennþá á tónleikunum og verð örugglega næstu vikur.

Núna ómar þetta:

hold my head
we'll trampoline
finally through the roof
on to somewhere near
and far in time
velouria
her covering
travelling career
she can really move
oh velveteen!

my velouria, my velouria
even i'll adore you
my velouria

Eftir korter verður það eitthvert annað lag, svo næsta, svo næsta, svo næsta.......

:: Valgarduz föstudagur, maí 28, 2004 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 26, 2004 ::
I live cement
I hate this street
Give dirt to me
I bite lament
This human form
Where I was born
I now repent

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
9 1 1 1 1 X X X X X X 1 1 1 1 1 3 3 3 3 3 S


:: Halogen miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
I was talking to preachy-preach about kissy-kiss
He bought me a soda
He bought me a soda
He bought me a soda and he tried to molest me in the parking lot
Yep, yep yep YEP!
I make you break
You make me hard


:: Halogen miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
9 1 1 1 1 X X X X X X 1 1 1 1 1 3 3 3 3 3 S


:: Halogen miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
Held að þetta sé: Heaven/Wave of mutilation uk surf

Annars var ég að komast yfir bootleg af tónleikum í Minneapolis 2004. Þar spila þau 20 lög + 5 í uppklapp.

:: HauXon miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
Lagalisti frá Kristalli (hann missti reyndar af byrjuninni og man ekki öll)

No 13 Baby
?
Carabou
I bleed
Wave of Mutilation
Delorium
?
U-Mass
Monkey gone to Heaven
Hey
Debaser
Uriah (?)
Gauge Away
Tame
Gigantic
Here comes your Man
(Kiddi skrifaði “sonofa”- ætli það sé ekki Nimrod’s Son)
Vamos
Where is my Mind
(Næsta runa frá Kidda er: “heavwaveencoveruksurf” . Það eina sem ég skil er UK Surf
?
Into the White

Lagið þetta ef þið fenguð skilaboðin frá honum og skiljið eitthvað betur en ég

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
Hreinasta snilld hjá hálf-stjúp-næstum-frænda mínum, Bjarka Lú. Við frú mín mætum í Víkurhverfið um fjósmál.

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
Hér hefur engin tilviljun ráðið ferð! Gítartvíóið hefur ekki staðist freistinguna og labbað Óðinsgötuna þangað til að Halo léti sjá sig á svölunum. Ósvífni en þeim er fyrirgefið þar sem þeir litu ekki til hans (þó svo að augun hafi eflaust gjóað gegnum sólgleraugun. Þeir hafa sennilegs séð samhengið.... sólguðinn Ra, the Ultimate male, hlyti að búa við Óðinsgötu! Eða kannski náð að lesa í reykmerkin sem berast reglulega af svölunum.

Annars hefur Bjarkuz de Lude boðið okkur að samverast að heimili þeirra hjúa að Hamravíkum 38 (í grafarhverfi hinu fyrra (vog)). Er mönnum uppálagt að mæta með pylsur og brauð á grillið eða djarfir gætu jafnvel tekið hambörger með sér. Mæting er ráðgerð um átjanhundruð. Hefur Bjarkuz sett upp tölvustýrt hljóðkerfi í stofunni sérstaklega í tilefni dagsins. Fjölmennum!

:: HauXon miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
DAMN!! Þvílík upplifun hlýtur þetta að hafa verið! Að vera bara að labba í rólegheitum eftir Óðinsgötunni, líta þá upp fyrir slysni og sjá RÍKAN!! Þvílík gæfa og tilviljun!

Á annars að hittast einhvers staðar síðari hluta dags til að þjappast saman áður en goðin verða barin augum? Hvenær opnar Krikinn?

Sendi Kristalli góðar kveðjur með von um ánægjuríka dvöl á fjarlægum ströndum.

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 26, 2004 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, maí 25, 2004 ::
Sönn reynslusaga

.....skellti mér út á svalir í gærkveldi til að fá mér smók sem aldrei fyrr. Þegar ég er umþaðbil að sjúga síðustu eiturgufuna sé ég 3 kauða labba eftir Óðinsgötunni. Svelgdist mér svakalega á eitrinu því þar voru á ferð Frank Black og Joe Santiego ásamt þriðja manni sem ég bar ekki kennsl á. Þeir veittu mér nú reyndar ekki allveg sömu athygli, en þeim Svarta var samt litið til reykspúandi Íslendingsins.........Held ég að hann hafi einmitt áttað sig á að þar stóð Ríkur..... Bölvaði ég staðsetningu svalana og að hafa ekki frekar farið við útidyrnar að smóka........

Ég segi þessa sögu með ca: 95% vissu að umræddir menn voru á ferð, en ekki tvífarar þeirra. Er ég nokkuð viss að í þessum rituðu orðum eru Frank og Jói að segja söguna: þegar þau sáu Ríkan. En náttúrulega trúir Þeim enginn!


:: Halogen þriðjudagur, maí 25, 2004 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, maí 23, 2004 ::
Jæja þá er ég og mín kominn aftur í Sódómu. Eins og kom fram í Ríkraútvarpinu þá erum við búinn að vera á fullu í skipulagningu á framtíðarskógræktaráætlunum fyrir Íslendinga. Og gekk það ljómandi vel.

Í gær var haldið hóf mér til heiðurs, í Miðgarði á nesi akra, til að fagna því að nú eru 15 ár liðinn frá því að ég útskrifaði mig úr grunnskóla. Þarna mættu um 80 æstir aðdáendur Ríkra úr hópi þeirra sem ég ákvað á þeim tíma að útskrifa með mér. Stóð gleðskapurinn í tæpa 12 tíma og fór hann vel fram.

Kristallur fær hér með síðbúna afmæliskveðju frá okkur.

And remember I'm just dirty!

:: Gmaríus sunnudagur, maí 23, 2004 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 21, 2004 ::
Kannski crowdið fái að hafa einhver áhrif á lagavalið hverju sinni. Þá ættu Ríkir að koma sér vel fyrir, ná persónulegu sambandi (a'la Violent Femmes) og láta álfana vita jafnóðum hvaða lag eigi að spila næst.

:: Valgarduz föstudagur, maí 21, 2004 [+] ::
...
|
Eins og sjá má á eftirfarandi tveimur giggum eru álfarnir ekki með sama prógrammið út túrinn. Það verður því fróðlegt að sjá hvað þeir ætla sér að bjóða Ríkum uppá.....

Spokane - 4/24/04

Subbacultcha
Is She Weird?
Dead
Cactus
Ed is Dead
Bleed
Monkey Gone to Heaven
Broken Face
Bone Machine
Levitate Me
No. 13 Baby
Velouria
Hey
Debaser
Gigantic
Tame
Gouge Away
Where is My Mind?
Here Comes Your Man
Nimrod’s Son
The Holiday Song
Vamos
In Heaven
Wave of Mutilation (UK Surf)
Wave of Mutilation
Crackity Jones
Isla de Encanta
Something Against You
Caribou


Calgary - 4/19/04

Bone Machine
River Eurphetes
Cactus
I Bleed
UMass
Velouria
No. 1 3 Baby
Gouge Away
Hey
Monkey Goes to Heaven
Broken Face
Isla de Encanta
Wave of Mutlilation
Debaser
Tame
La La Love You
Here Comes Your Man
Nimrod’s Son
Ed is Dead
The Holiday Song
Vamos
Gigantic
Something Aginst You
Head On
Planet of Sound
Into The White


:: Halogen föstudagur, maí 21, 2004 [+] ::
...
|
Yfir hafið svífa hamingjuóskir frá hjónaleysunum og Hrannarsdóttur. Nánd dauðans er mæld í árum og er elsti Ríkur því ávalt á undan. Álfarnir átta sig á þessu og humma "Komdu andansferðalangur, áður en þú apast til skýjanna (í helgarferð)."

Heyrði í Hreimstaðatröllinu núna um daginn og þjáist það af timburmönnum eftir MASSÍVAR gróðursetningar á Hreimsstaðaundirlendinu og leggur þar fysta vísinn að Ríkralundinum.

Fjölmiðlafrumvarpið. Varð bara að nefna það til þess að það hefði verið rætt hér á blogginu eins og önnur mál. Og er það þá útrætt!

Samkvæmt áræðanlegum heimildum fréttastofu Ríkraútvarpsins fór Haló ásamt Jöhólóvic í reiðtúr norður yfir heiðar. Slettu norðanmenn í klaufana og samkvæmt dagbók löreglunnar var Jölli hnepptur í varðhald af Brain Police og Haló er grunaður um að hafa sagt eitthvað. Komust þeir á flótta undan norðlenskum tæknitæfum um kl. 1:00 og leituðu skjóls í hænsnabúi sem hafði verið breytt í gistiheimili rétt utan Akureyrar. Er líðan þeirra góð eftir atvikum.

:: HauXon föstudagur, maí 21, 2004 [+] ::
...
|
By the way....

Im still the dirty one!

:: Valgarduz föstudagur, maí 21, 2004 [+] ::
...
|
Kristallur! Afmæliskveðjur til þín frá mér og fjölskyldu minni (með kærri þökk fyrir óvænt afmæliskaffi). Einnig vill uppáhalds frænka þín sem situr hérna við hliðina á mér senda þér hjartanlegar afmæliskveðjur. Við munum ekki símann í óskalögum sjúklinga þannig að þú verður að velja þér sjálfur eitthvert skemmtilegt lag eftir að þú lest þessar kveðjur.

:: Valgarduz föstudagur, maí 21, 2004 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 19, 2004 ::
Eru duldar meiningar hér? Er Charles að nota hér táknmyndir hins heilaglega kvenleika? Einn sopi af söltu víni. Er verið að vísa til musterisriddarana hér? Hvað getur þetta þýtt... Á hvaða lengdarbaug er Dauðahafið? Er verið að tala um kardinála Zal Tvyne... Kemur Vatíkanið eitthvað inn í þetta??

Híhíhíhíhíhí

:: HauXon miðvikudagur, maí 19, 2004 [+] ::
...
|
Fljótið Efrat


Ríðum, ríðum

Fastur hér, bensínlaus
á miðri Gazaströndinni
eftir ofsaakstur

Við ríðum Tígrinum niður fljótið Efrat
ríðum Tígrinum niður fljótið Efrat
ríðum, ríðum...

Dauðahafið kom honum á flot
einn sopi af hinu salta víni
Dauðahafið – og þér svelgist á

Við ríðum Tígrinum niður fljótið Efrat
ríðum Tígrinum niður fljótið Efrat
ríðum, ríðum...

:: Valgarduz miðvikudagur, maí 19, 2004 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 17, 2004 ::
Rétt að taka fram að ég er ekki að segja að actual lagalistinn sé ómögulegur, heldur miklu frekar að benda á að þetta er svo gjörsamlega frábært band og svo óskeikult í lagasmíðum sínum, að það er auðveldlega hægt að setja upp tvöfalt tónleikaprógramm og samt yrði maður alsæll með hvort tveggja.

:: Valgarduz mánudagur, maí 17, 2004 [+] ::
...
|
Útbjó nýjan lagalista fyrir Pixies. Ég held bara að tónleikar með þessum lagalista yrðu lítið síðri en með actual lagalistanum. Reyndar eitt cover lag þarna, en það er náttúrlega gjörsamlega frábært lag eftir ódauðlegan snilling þannig að það er engin skömm að láta það fljóta með. Minn lagalisti lítur sem sé svona út:

River Euphrates
Something against you
Cactus
Allison
Hey
I’ve been tired
Dig for fire
Stormy Weather
Subbacultcha.
Hang wire
Alec Eiffel
Head on
Lovely day
I’ve been waiting for you
Manta Ray
Santo
Letter to Memphis
Into the white
Wave of Mutilation (tvö síðustu eru reyndar líka á hinum listanum)

:: Valgarduz mánudagur, maí 17, 2004 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 14, 2004 ::
Ég hélt það væri Framstæðisflokkurinn

:: Valgarduz föstudagur, maí 14, 2004 [+] ::
...
|
Ég trúi nú ekki öðru en að fjelagi Valgarduz hverfi frá stuðningi sínum Bændablekkinguna. Sérstaklega nú er forseta Íslands er haldið í pólitískri gíslingu af Sjálfssóknarflokknum.

:: HauXon föstudagur, maí 14, 2004 [+] ::
...
|
Mjá

:: Valgarduz föstudagur, maí 14, 2004 [+] ::
...
|
Hann er eins og aðrir Framsóknarmenn. Kötturinn í sekknum. Datt í hug að næstu tvífarar getu verið Dónut Rummkókos og Olaf deGrisen. Ekki eins en pósurnar oft svipaðar.

:: HauXon föstudagur, maí 14, 2004 [+] ::
...
|
Ég vildi ekki breyta myndinni. Líkingin er augljós hvort eð er. Það væri frekar að finna aðra mynd ef kettinum.

:: HauXon föstudagur, maí 14, 2004 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, maí 13, 2004 ::
Ljóð dagsins er eftir Charles Thompson:

Streytist ekki lengur á móti, kasta minni kveðju
Ek bílnum mínum í hafið
Þið haldið að ég sé látinn, en ég sigli í burtu
Með limlestingabrimi
brimi
brimi

Hef kysst hafmeyjur, farið á bak el Ninjos
gengið strendurnar með skeldýrum
komst leiðar minnar til Hafnarfjarðar*
Með limlestingabrimi
limlestingabrimi
limlestingabrimi
brimi

limlestingabrimi
brimi

*fannst það viðeigandi þar sem tónleikarnir eru í Krikanum :-)

:: HauXon fimmtudagur, maí 13, 2004 [+] ::
...
|
Ekki sé ég fram á ferð til Héraðs í sumar, vart hægt að bjóða barnshafandi konu minni upp á svo langt ferðalag. Hins vegar væri ég til í golf og veiði nánast hvenær sem er. Ég er nú orðinn skráður félagi í Golfklúbbnum Leyni þannig að nú er ekkert sem hindrar mig í að spígspora um garðaflóa í glímu við ása, járn og fleyga. Hvað hið opinbera golfmót Ríkra varðar set ég hér með fram tillögu um eftirfarandi dagsetningar:

laugardagur 3. júlí
laugardagur 10. júlí
laugardagur 26. júlí
laugardagur 7. ágúst
laugardagur 14. ágúst

Haldið þið ekki að Ríkir náist saman einhvern þessara daga til hvítkúluglímu. Að gefnu tilefni er rétt að nefna, að gera skal jafnframt ráð fyrir veislumáltíð og fundarhöldum að kveldi að loknu golfmóti. Komið nú með komment og festum dag - því fyrr því betra!!

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 13, 2004 [+] ::
...
|
Við förum auðvitað fram á að framkvæmdum verði hraðað ef við ætlum að heiðra austmenn með nærveru okkar. Ríkir hf. hýrast ekki í einhverjum tjaldlörfum eins og hirðingjar! (nema um sérstök lúxus tjöld séu að ræða (sem Ríkir eiga auðvitað (og gætu þess vegna alveg komið)))

:: HauXon fimmtudagur, maí 13, 2004 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 12, 2004 ::
Tja alltaf er ég til í að fara í golf og/eða veiði. Hvort sem það er í Skotlandi, hér sunnan heiða eða á óðali okkar að títt nefndum stöðum Hreims. Það er bara alltaf þessi gullna spurning um tímann og vatnið sem Hauxon nefndi í skrifum sínum. Við hjúin munum halda á óðalið í næstu viku og dvelja þar í tæplega viku tíma. Einnig mun ég og mín halda okkur þar í svo gott sem allan júní. Ekki veit ég hversu mikill tími verður til tómstunda þar sem stefnt er á allverulegar viðhaldsframkvæmdir á kastalanum. Þess vegna má búast við að mest allur tími okkar fari í að stjórna því verki. Þó má vel vera að finna megi eins og 1 til 2 daga til annara starfa. Mæli ég þar með golfvellinum að Ekkjufelli. Þar má sameina fjallgöngu og golfíþróttina á einum stað!

Eru menn velkomnir í heimsókn en ekki get ég þó lofað viðunandi svefnaðstöðu að svo stöddu þar sem mögulegt er að svíturnar verði lokaðar vegna framkvæmda. Kannski mætti þó finna pláss fyrir tjaldborg vora á þessum tæpu 15.000.000 m2 sem við höfum opinberlega slegið eign okkar á.

Varðandi þjóðsögur. Þá er ekki við öðru að búast en að í þau fáu skipti sem Ríkur getur gefið sér tíma til veiða að um þá ferð spinnist miklar og kyngimagnaðar þjóðsögur. Enda vart við öðru að búast þegar slíkir veiðimenn heiðra veiðivötnin með nærveru sinni og stórfengleik.

Annars vil ég nota tækifærið og þakka forseta Sláttuvélanefndar Grasvallasviðs Íþrótta- og tómstundamálaráðs Almúgráðuneytis Ríkra fyrir að opna á þessa umræðu.

:: Gmaríus miðvikudagur, maí 12, 2004 [+] ::
...
|
Var að lesa viðtal við Stormskerið í fréttablaðinu. Heimildarmyndin er 7 ára gömul og öll klippt úr samhengi. Ekki undarlegt að maður hefi haft á tilfinningunni að Sverrir hafi sjálfur klippt hana til og hugsað sem djók. Það brann víst ofan af kallinum ekki fyrir löngu. Heyrði að menn væru að spá styktargolfmót fyrir kallinn, ég myndi hiklaust taka þátt!

Fyrst að ég er mest að spjalla við sjálfan mig hér á blogginu er ég að spá í að svara fyrirspurn minni um Hvítkúluglímuna. Ég er alltaf laus nema í kringum 20. júní. Fyrir tveimur árum setti ég aflamet í Veiðivötnum og vegna fjölda áskorana er ég að spá í fara aftur í opnunina í ár. Sagði faðir minn mér að hann heyri annars lagið menn segja sér frá þjóðsögunni þegar einhverjir þrír náungar lentu í moki í opnuninni 2002. hehehe Fyrir þá sem ekki hafa heyrt söguna mörgum sinnum þá veiddum við þrír yfir 100 stykki í ferðinni þrátt fyrir að hafa sleppt öllum fiskum undir 2 pundum. Við lentum í 2-3 tíma í torfu þar sem fiskur var á í nánast hverju einasta kasti. Flestir geta látið sig vona að fá svo 3-5 í svona ferð. Til að mynda fór ég ásamt 5 manna hóp í 5 daga 1997 og heildaraflinn var 5 eða 6 fiskar og fram að morgninum sem við fórum var ég sá eini með fisk sem var stærri en eitt pund. Híhíhí Jæja þetta mont skiptir ekki máli þar sem ég er sá eini sem les þetta hvort eð er.

Annars væri ég til í árvissa veiðiferð með Ríkum ef menn væru ekki svona ofboðslega bissí. T.d. spurning hvort óðalsbóndinn gæti ekki boðið í veiði. Reyndar jafnlangt að fara í veiði til Skotlands. bla bla

:: HauXon miðvikudagur, maí 12, 2004 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, maí 11, 2004 ::
Heyrst hefur það sé laus staða fangavarðar í Abu Ghraib fangelsinu. Spurning hvort að Björn Bjarnason og hvað heitir hann, snoðkollurinn sem stýrir útlendingaeftirlitinu, ættu að sækja um?

Spurning hvort það þurfi ekki að fara að huga að Hvítkúluglímunni. Miðað við skipulagshæfileika síðustu ára veitir ekki af því að byrja ef viðburðurinn á að fara fram meðan gras grær. Svo sýnir síðasta golfferð mín að líkurnar á að ég verji titilinn séu hverfandi litlar þannig að ef til vill borgar sig fyrir ykkur hina að halda þetta fljótlega.

Kveðja, Hauxon forseti Slátturvélanefndar Grasvallasviðs Íþrótta- og tómstundamálaráðs Almúgráðuneytis Ríkra (S.V.N.G.V.S.Í.O.T.M.R.A.M.Ú.R.)

:: HauXon þriðjudagur, maí 11, 2004 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 10, 2004 ::
Ég skal koma með þér Halogen og taka River Euphrates.

:: Valgarduz mánudagur, maí 10, 2004 [+] ::
...
|
Sá heimildarmyndina um Sverri Stormsker á RÚV í gær. Maðurinn er hreinræktaður snilli. Viðtöl við "vini" hanns sem flestir mundi ekki eftir neinu sérstaklega jákvæðu um hann. Undarlegur þáttur. Hitti annan snilling úti á lífinu, sjálfan Jóhannes Helgason. Hann var haugölvaður, klæddur í Marilyn Manson leðurfrakka og vildi endilega fá okkur með sér á Hverfisbarinn, en hann ætlaði fyrst að skreppa í smástund á Nasa. Þar sem við vorum eitthvað treg til, hrópaði hann þegar hann gekk í á að Nasa: "Þeir sem mæta ekki splæsa á barnum!" hehehehe Alltaf gaman að hitta Jóhannes. Eins og Sverrir orðar það sjálfur:

Horfðu á björtu hliðarnar,
heimurinn hann gæti verið verri.
Horfðu á björtu hliðarnar,
heimurinn á ennþá menn eins og Sverri,
sem allt lýsa upp.

:: HauXon mánudagur, maí 10, 2004 [+] ::
...
|
  :: sunnudagur, maí 09, 2004 ::
Kveldið!

Að sjálfsögðu ætti Pixies að taka hvert einasta lag sem sveitin hefur látið þrykkja á vinyl frá upphafi. Þetta er jú eitt af þeim böndum sem varla hefur tekið feilspor nema þá kannski Silver. Það vantar sárlega meistarastykki eins og River Auphrates? Af hverju sleppa þau því? Ég fer ekki úr krikanum fyrr en það lag er búið.....þau ég þurfi að stökkva upp á svið og taka það sjálfur.

Fá samt prik fyrir að taka Into The White....




:: Halogen sunnudagur, maí 09, 2004 [+] ::
...
|
  :: laugardagur, maí 08, 2004 ::
Veloria er náttúrlega af Bossanova. Það mætti að ósekju bæta inn nokkrum lögum. Stormy Weather er eitt af mínum uppáhaldslögum og auðvitað Subbacultcha. Spurning um að neyða þau til að spila án hlés í 4 tíma, þá ættu þau að ná flestum :-D hehe

:: HauXon laugardagur, maí 08, 2004 [+] ::
...
|
  :: föstudagur, maí 07, 2004 ::
Önnur uppástunga um næsta Doppelgänger-par á heimasíðuna: Lenín og Bjarki Lúðvíks!

:: Valgarduz föstudagur, maí 07, 2004 [+] ::
...
|
Með lagalistann, þá var ég reyndar búinn að lesa einhvers staðar frá fyrstu tónleikunum í Minneapolis, að það væru engin lög af Bossanova á prógramminu (ég er svo sem alveg sáttur við það).

Ég væri hins vegar alveg til í að heyra:

Something against you
Cactus
Allison (þó það sé af Bossanova)
Hey

En annars dettur mér ekki í hug að kvarta. Ef Pixies mæta og spila það sem þau vilja spila, þá verð ég alsæll.

:: Valgarduz föstudagur, maí 07, 2004 [+] ::
...
|
........samt er doldið skrítið að það skuli bara vera eitt lag af Trompe Le Monde og ekkert af Bossanova.

Ætli Pixies meðlimir hafi snappað og halda það sé ´89 og þetta sé tónleikatúrinn fyrir Doolittle.

:: Halogen föstudagur, maí 07, 2004 [+] ::
...
|
  :: fimmtudagur, maí 06, 2004 ::
lásí listi....engar almennilegar melódíur.

heimasíða mánaðirins er: www.gylfi.is
Ath! Hægt er að sjá sýnishorn verka með því að smella á kassana.


:: Halogen fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
Fann lagalista sem Pixies hafa leikið á tónleikunum undanfarið.

Bone Machine
Wave of Mutilation
U-Mass
Levitate Me
Broken Face
Monkey Gone To Heaven
Holiday Song
Winterlong
Nimrod's Song
La La Love You
Ed Is dead
Here Comes Your Man
Vamos
Debaser
Dead
Number 13 Baby
Tame
Gigantic
Gouge Away
Caribou

Uppklapp:

Isla De Encanta
Velouria
In Heaven->Wave of Mutilation (UK Surf)
Where Is My Mind?
Into The White* [Funny note - this was the song i guessed they'd open with!]

:: HauXon fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
kraaaafftwweeeerrrk ..........totalfokkingandskotansgargandidjöfulsinssnilld ......eins og allt sem þýskt er

vantaði samt "showroom dummies"....legg hér með fram formlega kvörtun og ætlast til að þeir lagfæri prógrammið í samræmi við það....

:: Halogen fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
Það er margt sem ratar inn á ebay. Nú er verið að selja 18 holu golfvöll! hehehehe
WILLOW SPRINGS GOLF COURSE
Það er ekkert mál að punga út $1,400.000. Bónus verð, það er búið að fjárfesta fyrir um $3.000.000. hehehe

:: HauXon fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
Og svo maður hugi að nánustu framtíð:

We'll keep well bred,
We'll stay well fed,
We'll have our sons,
They will be all well hung.

They'll come and play,
Their friends will say,
Your daddy's rich,
Your mamma's a pretty thing.

(Reyndar minnir mig að í textanum hafi verið eitthvað annað orð en "thing" þarna síðast)


:: Valgarduz fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
:,:We are the robots:,:

:: Valgarduz fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
♪ Neonlights! ....Shimmering neonlights! ♪

:: HauXon fimmtudagur, maí 06, 2004 [+] ::
...
|
  :: miðvikudagur, maí 05, 2004 ::
Sjáumst hjá Hreimstaðatröllinu á eftir!

Svo smá ljóðalist:

Rendezvous on Champs-Elysees
Leave Paris in the morning on T.E.E.
Trans-Europe Express x4

In Vienna we sit in a late-night cafe
Straight connection, T.E.E.
Trans-Europe Express x4

From station to station
back to Dusseldorf City
Meet Iggy Pop and David Bowie
Trans-Europe Express x4

:: HauXon miðvikudagur, maí 05, 2004 [+] ::
...
|
Tek undir með fyrri ræðumönnum. Nauðsynlegt er að samræma aðgerðir áður en við heiðrum Kraftawerkið með nærveru okkar. Því bjóðum við Ríkum að mæta í Miðborgarsetur okkar upp úr klukkan 1700. Svo menn geti teigað mjöð fram undir klukkan 1900.

Gmaríus mikli frá Hreimsstöðum

:: Gmaríus miðvikudagur, maí 05, 2004 [+] ::
...
|
Yo hómís.
Ég get því miður ekki tekið þátt í fyrirbænasamkundu þar sem ég þarf að sinna blekkingarstarfi mínu í það minnsta til GMT 19:31:55.

Yfir og út. Norður og niður.

:: Halogen miðvikudagur, maí 05, 2004 [+] ::
...
|
Tek hér undir með félaga Valgarduzi. Fyrir þá stundu er vér munum vitna í kveld gæti reynst þýðingarmikið að funda til að samræma aðgerðir. Langar mig að stinga upp á þýskum mjöð, kannski 1 eða 3 fyrir hljómsýninguna. Halogenið reyndi þá miklu písl að vera allsgáður á Kerlingunum og tekið mið af því er ekki hægt að mæla með slíku. Borgarsetur mitt er ekki til þess fallið að samkunda í kveld. Tengdó hefur verið treyst fyrir æsku Ríks og gætir hennar að Víðimelum. Spörning hvort Halogenius eða Gmarius geta lánað lendur sínar okkar nærveru?? Krafwerksmenn ætla að opna dyr Krikans klukkan 1900. Þannig að vér þurfum að mætast ekki seinna en sex.

Ofan og uppundir, Hrannkov de Hauchsky

:: HauXon miðvikudagur, maí 05, 2004 [+] ::
...
|
  :: þriðjudagur, maí 04, 2004 ::
Hvað á að gera annað kvöld? Hittast og samræma aðgerðir?

:: Valgarduz þriðjudagur, maí 04, 2004 [+] ::
...
|
  :: mánudagur, maí 03, 2004 ::
KRAFTWERK!!!!!!!!

:: Valgarduz mánudagur, maí 03, 2004 [+] ::
...
|
RÍKIR!!! Ég legg til að Davíð Oddssyni verði bolað frá völdum hið fyrsta (helst fyrir 17. júní) og að Skyr.is verði framleitt með krækiberjabragði.

:: Valgarduz mánudagur, maí 03, 2004 [+] ::
...
|

[::..Þóknanlegt..::]



Danskir teiknarar!



Jón Baldvin



Max Headroom



Seona Dancing



Türkmenbashy






STÓRVAL


[::.Tvífarinn.::]


Mugi jón Hafstein-son


William H. Macy
Hauxon á MSN

This page is powered by Blogger. Isn't yours?